5. fundur
5. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.09.2024
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Valgerður Eyja Eyþórsdóttir
- Anna Kristín Elmarsdóttir
- Heiða Bríet Andradóttir
- Emilía Ósk Hauksdóttir
- Eyþór Elvar Þórarinsson
- Auður Ýr Magnúsdóttir
- María Draumey Kjærnested
- Freyja Huginsdóttir
- Ester Helga Helgadóttir
- Daníel Pétursson
- Una Kristjana Hannesdóttir
Starfsmenn
- Tómas Þór Jacobsen
Ritari
- Tómas Þór Jacobsen
Birna Rún leikkona og leikstjóri var gestur fundarins í umræðu um forvarnarviku Garðabæjar.
Dagskrá
Málsnúmer 2401576
01
Áfangaskýrsla ÍTG um ungmennahús.
Valgerður Eyja formaður ungmennaráðs fór létt yfir áfangaskýrslu ÍTG varðandi ungmennahús. Valgerður Eyja og Hrannar Bragi Eyjólfsson formaður ÍTG hafa verið í miklum samskiptum og kom Valgerður aðeins að áfangaskýrslunni sjálfri, þ.e.a.s. hvernig ungmennaráðið sér fyrir sér að starfsemin myndi ganga fyrir sig.
Málsnúmer 2401576
02
Forvarnarvika Garðabæjar.
Ungmennaráð hefur ákveðið að gera forvarnarmyndbönd fyrir forvarnarviku Garðabæjar, líkt og gert var fyrir nokkrum árum. Það var velt steinum hvernig ungmennaráðið vill hafa myndböndin. Fulltrúar ungmennaráðsins munu sjálf ekki fara með stórt hlutverk í myndböndunum heldur mun ráðið reyna að fá þekkta einstaklinga í þjóðfélaginu sem þau líta á sem fyrirmyndir fyrir ungmenni til þess að ræða ýmisleg málefni tengd hugtakinu "samskipti".
Markmiðið er að fá 16 einstaklinga til þess að vera í myndböndunum. Íþróttafólk, leikara, söngvara og áhrifavalda. Einnig er markmiðið að myndböndin séu í svipuðum stíl og Sjúkást myndböndin.