6. fundur
6. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
19.06.2024
Kl. 16:00 - 16:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - áheyrnarfulltrúi
- Vigdís Gunnarsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Guðrún Jónsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2401346
01
Samningur um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir
Skýrsla Samhjálpar - Vetraropnun 2023-2024 lögð fram til kynningar.
Skýrsla Samhjálpar - Vetraropnun kaffistofu Samhjálpar 2023-2024 lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2405453
02
Fyrsta hvítbókin í málaflokknum: Samfélag okkar allra - framtíð og stefna Íslands í málefnum innflytjenda
Fyrsta hvítbókin í málaflokknum - Samfélag okkar allra framtíð og stefna Íslands í málefnum innflytjenda var lögð fram til kynningar bæjarráði þann 4. júní 2024 og vísað til kynningar í velferðarráði.
Fyrsta hvítbókin í málaflokknum - Samfélag okkar allra framtíð og stefna Íslands í málefnum innflytjenda lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2311298
03
Úttekt á samræmdri móttöku flóttafólks
Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á samræmdri móttöku flóttafólks var lögð fram til kynningar í bæjarráði dags. 21 maí 2024 sem vísaði málinu til umfjöllunar velferðarráðs.
Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á samræmdri móttöku flóttafólks lögð fram til umfjöllunar. Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri samræmdrar móttöku kynnti skýrsluna og svaraði spurningum nefndarfólks.
Málsnúmer 2301082
04
Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026
Lokadrög að aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum fyrir árin 2024-2026 lögð fram.
Drög að aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum fyrir árin 2024-2026 lögð fram til lokayfirferðar velferðarráðs. Velferðarráð lýsir yfir ánægju sinni með aðgerðaáætlunina og þakkar öllum þeim sem komu að gerð hennar.