Beint í efni

Neyð­ar­stjórn Garða­bæj­ar

Neyðarstjórn er ætlað að styðja og styrkja aðgerðir einstakra sveitarfélaga með samræmingu, upplýsingum og boðleiðum.

Ráðhús Garðabæjar

Neyðarstjórn Garðabæjar

Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skipa neyðarstjórn með erindisbréfi sem skilgreinir hlutverk og tilgang neyðarstjórna og liggur sú skipan til grundvallar mönnun neyðarstjórnanna. Neyðarstjórnirnar starfa hvort sem er á hefðbundnum tímum og almannavarnatímum.

Neyðarstjórn Garðabæjar hefur því hlutverki að gegna að samhæfa aðgerðir og grípa til neyðarráðstafana á hættustundu til að forgangsraða lögbundinni þjónustu og samfélagslega mikilvægri starfsemi. Ásamt því að tryggja almannaheill, lágmarka hugsanlegan samfélagslegan skaða og verja grunnstoðir í þjónustu sveitarfélagsins til að halda uppi nauðsynlegri starfsemi.

Hlutverk neyðarstjórna

Frumskylda Garðabæjar er að stuðla að öryggi og velferð íbúa bæjarins. Neyðarstjórn Garðabæjar hefur því hlutverki að gegna að samhæfa aðgerðir og grípa til neyðarráðstafana á hættustundu til að forgangsraða lögbundinni þjónustu og samfélagslega mikilvægri starfsemi. Ásamt því að tryggja almannaheill, lágmarka hugsanlegan samfélagslegan skaða og verja grunnstoðir í þjónustu sveitarfélagsins til að halda uppi nauðsynlegri starfsemi.

Að öðru leyti helst stjórnskipulag sveitarfélagsins óbreytt og ber hver stjórnandi ábyrgð á sínum starfsvettvangi/sinni starfsstöð skv. hefðbundnu skipulagi.

  • Bæjarstjóri er formaður neyðarstjórnar Garðabæjar og er hún virkjuð á hættustundu samkvæmt ákvörðun formanns. Neyðarstjórn hefur heimild til að taka ákvarðanir og stofna til útgjalda umfram það sem segir í fjárhagsáætlun enda sé um slík tilfelli að ræða að afgreiðsla þeirra þoli enga bið.
  • Bæjarstjóri fer ásamt bæjarráði með framkvæmdastjórn Garðabæjar. Fagsvið, skrifstofur og fyrirtæki og stofnanir Garðabæjar bera hvert í sínu lagi ábyrgð á þeirri þjónustu sem þau veita.
  • Bæjarráð veitir aðrar nauðsynlegar heimildir vegna sérstakra fjárútláta og er á hættustundu í viðbragðsstöðu þar sem nauðsynlegt getur verið að kalla til aukafundar.

Neyðarstjórn Garðabæjar starfar samkvæmt viðbragðsáætlunum og ber starfsmaður hennar ábyrgð á fundarboðun, undirbúningi funda og úrvinnslu í samráði við bæjarstjóra.

Neyðarstjórn Garðabæjar 2022-2026 - aðalmenn eru

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri, ábyrgðarmaður neyðarstjórnar Garðabæjar
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
  • Hulda Hauksdóttir, - deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, starfsmaður neyðarstjórnar Garðabæjar

Neyðarstjórn - varamenn eru

  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
  • Inga Þóra Þórisdóttir - mannauðsstjóri
  • Lúðvík Hjalti Jónsson - fjármálastjóri
  • Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur á velferðarsviði
  • Vala Dröfn Hauksdóttir - deildarstjóri upplýsingatæknideildar
  • Kjartan Sævarsson - deildarstjóri fasteigna

Almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu

Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær. Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær og Kjósarhreppur, standa að almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins (AHS). 

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur umsjón með almannavarnanefndarstarfi á höfuðborgarsvæðinu fyrir hönd sveitarfélaganna. Starfsmenn almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins eru framkvæmdastjóri og deildarstjóri sem eru jafnframt starfsmenn SHS (slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins)

Sjá nánar um almannavarnir á vef SHS.

Almannavarnir á landsvísu

Ríkislögreglustjóri annast starfsemi almannavarna skv. lögum og þar er sérstök almannavarnardeild starfandi. Á vefnum almannavarnir.is eru upplýsingar um almannavarnir á landsvísu. Þar má nálgast fróðleik um almannavarnir og hægt að fylgjast með tilkynningum um almananvarnarstig.