Beint í efni

Búr­fell, Búr­fells­gjá og Búr­fells­hraun

Friðlýsingar hraunahluta Búrfellshrauns, Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár voru staðfestar af umhverfis- og auðlindaráðherra í húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands 30. apríl 2014.

Tvær friðlýsingar

  • Garðahraun, Vífilsstaðahraun og Maríuhellar voru friðlýst sem fólkvangur, samtals 156,3 hektarar.
  • Búrfell, Búrfellsgjá og eystri hluti Selgjár voru friðlýst sem náttúruvætti eða sérstæðar náttúrumyndanir, samtals 323 hektarar. 

Samtals eru svæðin sem voru friðlýst 480 hektarar að flatarmáli.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar undirrituðu við sama tilefni samninga um umsjón hraunanna, Búrfells og Búrfellsgjár milli Umhverfis- og orkustofnunar og Garðabæjar.

Samkvæmt samningnum tekur Garðabær að sér umsjón hinna friðlýstu svæða og skuldbindur sig til að gæta þeirra og upplýsa almenning um varðveislugildi þeirra.

Búrfell og gjárnar eru innan marka Reykjanesfólkvangs.