Friðlýst svæði
Í Garðabæ er lögð mikil áhersla á náttúruvernd svo íbúar og gestir geti notið ósnortinnar náttúru í nærumhverfinu. Um fjórðungur lands í lögsögu bæjarins nýtur friðlýsingar eða hverfisverndar og markvisst er unnið að vernd fleiri verðmætra svæða.
Friðlýst svæði í Garðabæ
Friðlýst svæði njóta verndar samkvæmt lögum og geta verið skilgreind sem friðlönd, fólkvangar, sérstæðar náttúrumyndanir eða búsvæði.
Eftirfarandi svæði eru friðlýst eða njóta verndar:
- Kasthúsatjörn og aðliggjandi fjara – friðland og fólkvangur
- Hlið á Álftanesi – fólkvangur
- Gálgahraun – friðland
- Skerjafjörður innan bæjarmarka Garðabæjar – búsvæðavernd
- Garðahraun, Vífilsstaðahraun og Maríuhellar – fólkvangur
- Vífilsstaðavatn og nágrenni – friðland
- Reykjanes- og Bláfjallafólkvangar – að hluta innan Garðabæjar
- Bessastaðanes – friðland
Á yfirlitskorti yfir friðlýst svæði í Garðabæ má sjá afmörkun friðlýstra svæða og hvaða vernd gildir á hverjum stað.
Einnig er hægt að sjá friðlýst svæði á kortavef Garðabæjar. Velja þarf Hagnýtar upplýsingar í valmyndinni hægra megin og haka við Friðlýst svæði. Nánari upplýsingar um einstök svæði má finna hér á eftir.
Friðlýst svæði

Gálgahraun og Skerjafjörður
Gálgahraun og Skerjafjörður eru meðal verðmætustu friðlýstu svæða í Garðabæ. Bæði voru friðlýst árið 2009 með undirritun samninga milli Garðabæjar og umhverfisráðherra.

Vífilsstaðavatn og nágrenni
Vífilsstaðavatn og nágrenni voru friðlýst árið 2007 og var það fyrsta friðlýsta svæðið í Garðabæ. Friðlýsingin nær yfir 188 hektara, þar af er vatnið sjálft 27 hektarar.

Búrfell, Búrfellsgjá og Búrfellshraun
Friðlýsingar hraunahluta Búrfellshrauns, Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár voru staðfestar af umhverfis- og auðlindaráðherra í húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands 30. apríl 2014.
Hverfisvernd
Auk friðlýstra svæða eru nokkur svæði í Garðabæ vernduð með hverfisvernd. Slík vernd miðar að því að varðveita náttúrufar og útivistargildi svæða í nærumhverfi íbúa. Hverfisvernd er mildari vernd en friðlýsing og felur ekki í sér sömu takmarkanir á umgengni. Meðal verndaðra svæða eru Lambhúsatjörn, Skógtjörn, Balatjörn, Urriðavatn og Grunnuvötn.
Umgengni um friðlýst svæði
Til að vernda náttúru og lífríki gilda eftirfarandi reglur á friðlýstum svæðum:
- Óheimilt er að spilla gróðri eða hrófla við jarðmyndunum
- Vélknúin ökutæki eru bönnuð nema vegna þjónustu
- Reiðhjól eru heimil á vegum og stígum
- Mannvirkjagerð og jarðrask eru óheimil nema með leyfi
Garðabær hefur umsjón með friðlýstum svæðum í samræmi við samninga við Umhverfis- og orkustofnun og vinnur að verndun þeirra og fræðslu til almennings.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.