Vífilsstaðavatn og nágrenni
Vífilsstaðavatn og nágrenni voru friðlýst árið 2007 og var það fyrsta friðlýsta svæðið í Garðabæ. Friðlýsingin nær yfir 188 hektara, þar af er vatnið sjálft 27 hektarar. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda vatnið og lífríki þess, tryggja svæðið sem útivistarsvæði og veita almenningi aðgang að ósnortinni náttúru í þéttbýli. Svæðið er í eigu Garðabæjar.

Fjölbreytt lífríki
Lífríki Vífilsstaðavatns hefur verið rannsakað um áratuga skeið og er meðal þess fjölbreyttasta á landinu miðað við flatarmál. Þar finnast sérstæðir stofnar bleikju, urriða, áls og hornsíla. Óvenjuleg blanda glerála frá Evrópu og Ameríku gengur upp Vífilsstaðalæk í Vífilsstaðavatn. Hornsílin í vatninu eru sérstök að því leyti að þau skortir kviðgadda og hafa vakið alþjóðlega athygli í rannsóknum á sviði þróunar- og erfðafræði.
Náttúrukennsla
Á hverju hausti sækja nemendur í 6. bekk grunnskóla Garðabæjar Vífilsstaðavatn og Vífilsstaðalæk í tengslum við náttúrufræðikennslu. Kennslan hefur verið í boði síðan 1999 og er liður í fræðslu um lífríki, vistkerfi og náttúruvernd.
Útivist

Umhverfis Vífilsstaðavatn liggur 2,6 km langur útivistarstígur. Ganga í kringum vatnið tekur um 35 mínútur og skokk um 15 mínútur. Á svæðinu eru bekkir, fræðsluskilti, skýli og aðgengileg bryggja fyrir fatlað fólk.
Gönguleiðir liggja einnig upp á Vífilsstaðahlíð og í Grunnavatnaskarð. Þegar vatnið er ísilagt er hægt að fara á skauta og yfir sumartímann er stangveiði heimil með Veiðikortinu.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.