Beint í efni

Gálga­hraun og Skerja­fjörð­ur

Gálgahraun og Skerjafjörður eru meðal verðmætustu friðlýstu svæða í Garðabæ. Bæði voru friðlýst árið 2009 með undirritun samninga milli Garðabæjar og umhverfisráðherra. Friðlýsingin er liður í langtímamarkmiði bæjarins um vernd Búrfellshrauna frá gígs til strandar.

Skerjafjörður

Skerjafjörður er friðlýstur sem búsvæði og nær friðlýsingin yfir fjöru og grunnsævi á um 427 hekturum lands og sjávar. Svæðið er mikilvægur viðkomustaður farfugla og hefur alþjóðlegt verndargildi, meðal annars fyrir rauðbrysting og margæs.

Markmið friðlýsingarinnar er að vernda lífríki svæðisins og tryggja útivistar- og fræðslugildi þess til framtíðar.

Gálgahraun

Gálgahraun er 108 hektara friðland og nyrsti hluti Búrfellshrauna sem runnu fyrir rúmum 7.000 árum. Verndargildi svæðisins felst meðal annars í því hversu ósnortið það er. Á svæðinu er að finna jarðmyndanir, fjölbreytt gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar, svo sem hina fornu Fógetagötu og Gálgaklett, sem er forn aftökustaður.