Beint í efni

Að galdra fram glæ­nýja heima - Barna­menn­ing­ar­há­tíð í Garða­bæ

Viðburðir

Bókasafn Garðabæjar

laugardagur, 17. október 2026 kl. 11:30 - 13:00

Orð eru ævintýri. Rithöfundurinn Arndís Þórarinsdóttir býður framtíðar rithöfundum á aldrinum 8-12 ára í skemmtilega ritsmiðju þar sem þátttakendur fá að skapa nýja heima, furðulegar persónur og óvænt ævintýri.

Opnuð verður dularfull orðakrukka sem Garðbæingar hafa fyllt af skemmtilegum orðum síðustu vikur, og úr þeim verður spunninn skáldskapur af bestu gerð. Komdu og njóttu skapandi stundar á bókasafninu. Aðgangur er ókeypis og ritföng á staðnum. Þessi viðburður er hluti af Barnamenningarhátíð í Garðabæ. Kynnið ykkur dagskrána í heild sinni á www.gardabaer.is

English Author Arndís Þórarinsdóttir invites aspiring writers aged 8-12 to a fun and imaginative writing workshop where participants will create new worlds, peculiar characters, and unexpected adventures. A mysterious Word Jar, filled with delightful words contributed by the people of Garðabær over the past few weeks, will be opened, and together we will weave those words into stories. Come and enjoy a creative session at the library. Admission is free, and all writing materials will be provided. This event is part of the Children’s Culture Festival in Garðabær. Be sure to explore the full programme at www.gardabaer.is.

Að galdra fram glænýja heima - Barnamenningarhátíð í Garðabæ - Garðabær