Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026
miðvikudagur, 12. ágúst 2026

Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu og hann mun sjást vel frá Garðabæ. Sérstakar ráðstafanir verða gerðar á Álftanesi til að tryggja umferðarflæði yfir daginn.
Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu og hann mun sjást vel frá Garðabæ. Þetta er fyrsti almyrkvinn sem sést frá höfuðborgarsvæðinu síðan 17. júní 1433 og því ljóst að um stóran og merkilegan viðburð er að ræða. Sólmyrkvinn mun vara í um tvo tíma. Hann hefst með deildarmyrkva síðdegis og nær hámarki með almyrkva milli kl. 17:44 og 17:47 eftir landsvæðum.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru hvattir til að horfa á almyrkvann 12. ágúst heiman frá sér til að draga úr álagi á samgöngur. En þar sem aðstæður til að fylgjast með þessu náttúruundri eru góðar á Álftanesi er búist við að töluverður fjöldi muni leggja leið sína þangað þennan dag.
Ráðstafanir á Álftanesi
Garðabær mun gera ráðstafanir á Álftanesi 12. ágúst til að tryggja gott umferðarflæði yfir daginn. Lögreglan mun stýra umferð um Álftanesveg.
- Hentugur safnstaður er við fjöruna vestast á Álftanesi. Skátar frá Hjálparsveit skáta í Garðabæ verða á svæðinu til að leiðbeina og aðstoða ef þarf.
- Einstefnuakstur (hringakstur) verður um Álftanes frá kl. 15:00 til kl. 20:00 í norður- og vesturátt, um Norðurnes- og Suðurnesveg. Hámarkshraði verður tekinn niður í 30 km/klst á hluta Suðurnesvegar.
- Viðbótarbílastæði verða útbúin á túninu við Breiðumýri sem og til vara við óbyggðar lóðir í Gásamýri og Svanamýri.
- Ferðasalerni verða sett upp í námunda við íþróttamiðstöð Álftaness einnig verður hægt að nota salerni í íþróttamiðstöðinni. Athugið að sundlaugin á Álftanesi er lokuð 10.-17. ágúst vegna viðhalds.
- Hægt verður að kaupa sér veitingar á svæðinu vestan við grasvöllinn.
Fólk sem ætlar að ferðast innan höfuðborgarsvæðisins þennan dag er hvatt til að leggja tímanlega af stað og gera ráð fyrir að dvelja lengur. Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkvanum lýkur má draga úr umferðartöfum og stuðla að öruggari umferð.
Rétti búnaðurinn
Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með almyrkvanum. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstakar síur sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun. Nota þarf gleraugun í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.
Sjá leiðbeiningar um verndun augna frá Embætti landlæknis þegar fylgst er með sólmyrkva.
Öll leikskóla- og grunnskólabörn í Garðabæ hafa fengið sólmyrkvagleraugu að gjöf frá Garðabæ. Sjá frétt hér.
Opinber upplýsingagátt og fræðslugátt
Hér má sjá gagnlega tengla vegna almyrkvans.
- Nánari upplýsingar má finna á upplýsingagátt stjórnvalda um almyrkvann á island.is.
- Fræðslugátt Sævars Helga Bragasonar um almyrkvann: https://solmyrkvi2026.is/
- Almennt efni á ensku fyrir ferðamenn: The Solar Eclipse in Iceland | Visit Reykjavík