Beint í efni

Sögu­ganga: Í fót­spor berkla­sjúk­linga með Ein­ari Skúla­syni um Víf­ils­staði

Viðburðir

Vífilsstaðir

fimmtudagur, 27. ágúst 2026 kl. 17:00

Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á fjórar áhugaverðar sögugöngur um Garðabæ.

Einar Skúlason göngugarpur leiðir sögugöngu um Vífilsstaði og nágrenni í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar.
Gangan verður farin fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17:00 og lagt af stað frá aðalbílastæðinu.

Á Berklahælinu á Vífilsstöðum var lagt mikið upp úr útivist og fersku lofti og þegar sjúklingar gátu var hvatt til gönguferða. Einar mun að einhverju leiti ganga í fótspor berklasjúklinga meðfram Vífilsstaðavatni og upp á Gunnhildi. Á leiðinni verða tekin nokkur stopp og fróðleiksmolum kastað á loft og samtal eiga sér stað um lífið á Berklahælinu. Gangan hefst við við aðalbílastæði Vífilsstaða kl. 20 og er 4-5 km á lengd og hækkun tæpir 100 metrar. Gera má ráð fyrir að gangan taki einn og hálfan tíma eða rúmlega það.

Þátttaka er ókeypis.
Ath ekki þarf lengur að skrá sig sérstaklega í gönguna.

Verið velkomin í gönguna!

Sögugöngur í Garðabæ í tilefni 50 ára afmælis
Sögugöngurnar eru haldnar á vegum Garðabæjar í samstarfi við Sögufélag Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands.

Viðburður á facebook síðu Garðabæjar.