Beint í efni

Sögu­göng­ur í Garða­bæ í til­efni 50 ára af­mæl­is

Fréttir
11.06.2026

Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á fjórar áhugaverðar sögugöngur um Garðabæ. Sögugöngurnar eru haldnar á vegum Garðabæjar í samstarfi við Sögufélag Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands.

Fyrsta gangan verður farin um Arnarnesið 25. júní undir leiðsögn Péturs Ármannssonar arkitekts og Sigríðar Sigurjónsdóttur forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands.

Arnarnesið er fyrsta skipulagða hverfið þar sem kveðið var á um að byggingar skyldu hannaðar af arkitektum. Á vestanverðu nesinu er að finna perlur úr íslenskri byggingarlistasögu frá sjöunda áratugnum, meðal annars einbýlishús eftir Manfreð Vilhjálmsson, Helga Hjálmarsson og Gunnar Hansson.

Lagt verður af stað frá bílastæðinu við hliðina á Mávanesi 1, klukkan 20:00.

Næstu göngur eru sem hér segir:

Ath eingöngu þurfti að skrá sig í fyrstu gönguna en það þarf ekki lengur að skrá sig í næstu sögugöngur.
Verið velkomin í afmælisgöngurnar í sumar!

Fimmtudagur 23. júlí klukkan 20:00

Silfurtúnið með Baldri Ó. Svavarssyni arkitekt.
Gangan hefst við Hagkaup, Litlatúni.

Fimmtudagur 13. ágúst klukkan 17:00

Útilistaverk í Garðabæ með Erlu Bil.
Gangan hefst við Uppsprettu eftir Pétur Bjarnason við Vídalínskirkju og lýkur í Silfurtúni.

Fimmtudagur 27. ágúst klukkan 17:00

Í fótspor berklasjúklinga með Einari Skúlasyni um Vífilsstaði.
Farið frá aðalbílastæðinu.