Söguganga: Útilistaverk í Garðabæ með Erlu Bil
Vídalínskirkja
fimmtudagur, 13. ágúst 2026 kl. 17:00

Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á fjórar áhugaverðar sögugöngur um Garðabæ.
Erla Bil fjallar um útilistaverk í Garðabæ. Gangan hefst kl. 17:00 fimmtudaginn 13. ágúst við verkið Uppsprettu eftir Pétur Bjarnason sem er við Vídalínskirkju (á kirkjutorgi sunnan við kirkjuna). Göngunni lýkur í Silfurtúni.
Ath ekki þarf lengur að skrá sig sérstaklega í gönguna.
Gengið verður á milli sjö útilistaverka samkvæmt lista hér fyrir neðan. Gangan er létt við allra hæfi, staldrað við hvert verk, skoðað og fræðst um það.
- Uppspretta á Kirkjutorgi við Vídalínskirkju
Höfundur Pétur Bjarnason.
Afhjúpað 1995. - Í mótun á inntorgi Garðatorgs 7
Höfundur Sigrún Guðmundsdóttir.
Afhjúpað 1988. - Þrenning á lóð Garðaskóla.
Höfundur Sigurjón Ólafsson 1970.
Afhjúpað 1990. - Við Ægisdyr á opnu svæði við Ásgarð.
Höfundur Pétur Bjarnason.
Afhjúpað 1993. - Landlagsmynd við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.
Höfundur: Brynhildur Þorgeirsdóttir.
Afhjúpað 1997. - Hönnun á opnu svæði milli Silfurtúns og Hafnarfjarðarvegar.
Höfundur Magnús Tómasson.
Afhjúpað 2001 á 25 ára afmæli Garðabæjar. - Serenaða (kvöldljóð) á opnu svæði við Silfurtún.
Höfundur Helgi Gíslason.
Afhjúpað 2001 á 25 ára afmæli Garðabæjar.
Gangan er öllum opin og þátttaka er ókeypis. Verið velkomin í gönguna!
Sjá einnig upplýsingar um allar sögugöngurnar hér í frétt.
Sögugöngurnar eru haldnar á vegum Garðabæjar í samstarfi við Sögufélag Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands.