Arnarland – Gatnagerð og veitulagnir
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Arnarland – Gatnagerð og veitulagnir (fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir auk landmótunar).
Upplýsingar um auglýst útboð
Arnarland – Gatnagerð og veitulagnir
Staða útboðs: Í auglýsingu
Útboð opnar: 07.05.2026
Útboð lýkur: 22.05.2026
Arnarland er nýtt uppbyggingarsvæði í Garðabæ og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og sveitarfélagamörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs.
Helstu stærðir og magntölur fyrir hverfið eru eftirfarandi:
- Lengd gatna 1.270 m
- Lengd stíga 180 m
- Uppúrtekt úr götum og stígum 40.400 m3
- Losun á klöpp í götu- og stígastæði 11.300 m3
- Losun á klöpp í skurðstæði 5.800 m3
- Styrktarlag 7.500 m3
- Fyllingar 5.200 m3
- Malbik 11.200 m2
- Fráveitulagnir 2.185 m
- Neysluvatnslagnir 1.520 m
- Skurðir veitna 4.310 m
Verklok eru 1. apríl 2027.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg í útboðskerfi NTI Bidco. Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 7. maí 2026.
Tilboð verða opnuð rafrænt miðvikudaginn 22. maí 2026.