Fjölmenni í sögugöngu
Fréttir
28.07.2026
Hátt í fimmtíu manns fylgdu Baldri Svavarssyni arkitekt í göngu um Silfurtúnið í blíðskaparveðri fimmtudagskvöldið 23. júlí sl.
Gangan var stórskemmtileg og fróðleg og liður í 50 ára afmælisdagskrá Garðabæjar en Baldur fjallaði um uppbyggingu hverfisins og breytingar í gegnum tíðina.
Afmælissögugöngur í sumar
Næsta ganga verður með Erlu Bil fyrrum umhverfisstjóra Garðabæjar þann 13. ágúst en hún mun ganga á milli nokkurra útilistaverka í bænum en gangan hefst kl. 17 við Uppsprettu Péturs Bjarnasonar við Vídalínskirkju. Sjá nánar hér um næstu göngu.
Afmælisssögugöngurnar í sumar eru alls fjórar og eru haldnar á vegum Garðabæjar í samstarfi við Sögufélag Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Sjá einnig upplýsingar um allar sögugöngurnar hér í frétt.





