Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg - 3. áfangi

Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg. Í 3. og síðasta áfanga verksins verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs áfram lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg.
Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg við Súlunes vegna nýs hverfis sem er að fara í uppbyggingu í Arnarlandi. Framkvæmdin verður unnin í áföngum og umferð verður haldið opinni allan tímann um Hafnarfjarðarveg. Framkvæmdartími er áætlaður frá 14. júlí til 18. ágúst 2026.
Þriðji áfangi - hjáleið frá Arnarnesvegi um Fífuhvammsveg að Hafnarfjarðarvegi
Þriðji áfangi framkvæmdarinnar í sumar er að fara af stað og hjáleið fyrir 3. áfangann um Hafnarfjarðarveg til norðurs (merkt með grænni línu) verður tekin í notkun í dag 11. ágúst.
Aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs verður áfram lokuð í 3. áfanga, hjáleið verður um Fífuhvammsveg. Sjá hjáleið merkta með appelsínugulri brotalínu á meðfylgjandi mynd með frétt.
- Sjá einnig frétt frá 4. ágúst sl. þegar 2. áfangi hófst
- Sjá einnig frétt frá 9. júlí sl. um framkvæmdirnar og nánari upplýsingar um hvern áfanga.
Vegfarendur eru beðnir um að fylgja öllum vegamerkingum og gæta varkárni á framkvæmdasvæðinu.