Skráning í frístundabílinn

Frístundabíllinn í Garðabæ keyrir börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf. Frístundabíllinn ekur alla virka daga á starfstíma grunnskóla og frístundaheimila frá 25. ágúst 2026 til 9. júní 2027.
Ef barn ætlar að nýta sér frístundabílinn í vetur þarf að skrá það í frístundabílinn í gegnum Völu vetrarfrístund í upphafi hverrar annar, bæði haust og vor, hvort sem barnið er í frístundaheimili eða ekki. Við skráningu þarf að velja hvar barnið tekur bílinn, tíma dags og hvert það er að fara.
Gjald fyrir haustönn 2026 verður 9.900 kr (óbreytt frá vorönn).
Íþróttir innan frístundar
Í haust hefst tilraunaverkefni í samstarfi Garðabæjar og Stjörnunnar um að börn í 1.-2. bekk í grunnskólum sem eru í íþróttum hjá Stjörnunni fari á æfingar nálægt frístundaheimili innan þess tíma sem þau eru á frístundaheimilinu og þurfa þá ekki að taka frístundabílinn á æfingar.
Sjá nánar í frétt hér.
Leiðakerfi og tímatafla
Á haustönn 2026 hefst aksturinn 25. ágúst til 17. desember. Frístundabílinn ekur á starfstíma skólanna alla virka daga frá kl. 14:00 eða 14:15 (mismunandi eftir leiðum) og er á endastöð milli 16 og 16:30 (mismunandi eftir leiðum).
Í vetur eru 4 leiðir í boði hjá frístundabílnum.
- Leið 1 fer frá Hofsstaðaskóla og Flataskóla (Mýrinni og Ásgarði)
- Leið 2 fer frá Barnaskóla Hjallastefnunnar
- Leið 3 fer frá Urriðaholtsskóla
- Leið 4 fer frá Álftanesskóla með viðkomu í Sjálandsskóla