SMS-listi vegna jarðvinnu í Arnarlandi
Nágrönnum Arnarlands stendur til boða að skrá sig á þar til gerðan sms-lista og fá sms-skilaboð frá verktaka um fimm mínútum áður en sprengt er vegna jarðvinnu sem stendur nú yfir.
Borun og sprengingar vegna jarðvinnu í Arnarlandi hófust um miðjan septembermánuð. Til viðvörunar um að sprenging sé væntanleg eru þrjú stutt hljóðmerki gefin um mínútu áður en sprengt er. Þegar sprengingu er lokið kemur eitt langt hljóðmerki.
Garðabæ og eftirlitsaðila framkvæmda hafa borist allnokkrar ábendingar um að hljóðmerki berist illa í viss hverfi í nágrenni Arnarlands.
Til að bregðast við þessu stendur nágrönnum Arnarlands til boða að skrá sig á þar til gerðan sms-lista, skráð númer fá sms-skilaboð frá verktaka um fimm mínútum áður en skoti er hleypt af.
Hér má skrá sig á sms-listann
Áætlað er að þessi sprengivinna standi yfir í um tvo mánuði en ekki er sprengt alla daga á tímabilinu.
Ef einhverjar athugasemdir eða spurningar vakna má hafa samband við eftirlitsmann á vegum verkkaupa, stefan@vsr.is, ef sem hefur umsjón með þessari jarðvinnu.
Sjá einnig: Borun og sprengingar í Arnarlandi
Sjá einnig: Framkvæmdir hafnar við Arnarland