Fréttir og tilkynningar
Fréttir21.11.2025Íþróttafólk Garðabæjar 2025 - Kallað eftir tilnefningum
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leitar til almennings til að fá sem gleggstar upplýsingar um árangur íþróttafólks í Garðabæ vegna viðurkenninga á Íþróttahátíð bæjarins.
Fréttir20.11.2025Garðabær orðið Barnvænt sveitarfélag
Gleðin var við völd í Sveinatungu á Garðatorgi þegar UNICEF á Íslandi veitti Garðabæ formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag og þar með markast stór tímamót.
Fréttir19.11.2025Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins stofnað
Farsældarráð höfuðborgarsvæðins var formlega stofnað föstudaginn 14. nóvember. Með stofnun ráðsins er stigið mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki sveitarfélaga og ríkisstofnana um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Fréttir19.11.2025Vel sóttur íbúafundur um framtíð Garðatorgs
Íbúafundur um breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Garðabæjar var vel sóttur og myndaðist gott samtal.
Fréttir18.11.2025Velkomin á íbúafund um Garðatorg
Á íbúafundi um miðbæ Garðabæjar verða spennandi breytingar kynntar sem ætlað er að glæða Garðatorg enn meira lífi. Fundurinn er haldinn þriðjudaginn 18. nóvember klukkan 17:00.
Fréttir13.11.2025Æsispennandi fjölskyldusýning á sviði FG
Leikfélag Fjölbrautarskólans við Garðabæ sýnir nú skemmtilegt frumsamið verk sem heitir Sagan af Mánahofi. Um æsispennandi barna- og fjölskyldusöngleik er að ræða. Síðastliðna helgi var sérstök góðgerðasýning fyrir Píeta og áfram verður hægt að styrkja samtökin í sjoppunni í FG.
Fréttir13.11.2025Upplestur, spjall og notaleg jólastemning á Jólabókaspjalli bókasafnsins
Árlega Jólabókaspjall bókasafns Garðabæjar fer fram fimmtudaginn 13. nóvember. Rithöfundarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Lilja Sigurðardóttir og Hrannar Bragi Eyjólfsson lesa úr nýjustu verkum sínu.
Fréttir13.11.2025Hugguleg stund bókaunnenda í Sveinatungu
Bókmenntaunnendur áttu notalega stund í Sveinatungu þegar hátíðin Iceland Noir teygði anga sína í Garðabæinn. Rithöfundarnir Chris Whitaker og Stefan Ahnem mættu og sátu fyrir svörum auk leikarans Will Tudor.
Fréttir13.11.2025Ánægja með breytingar á meðal foreldra og starfsfólks leikskóla
Ný Gallup-könnun sýnir að leikskólar í Garðabæ byggja á sterkum grunni og að þær breytingar sem gerðar voru árið 2023 hafa stutt vel við faglegt og öflugt skólastarf.
Fréttir12.11.2025Bilun á nokkrum vefjum Garðabæjar
Nokkrir vefir Garðabæjar liggja niðri vegna bilunar hjá vefþjónustu.
Fréttir11.11.2025Leita að fallegum jólatrjám
Þjónustumiðstöð Garðabæjar auglýsir nú eftir fallegum grenitrjám úr einkagörðum til að nota sem jólatré á opnum svæðum bæjarins.
Auglýsingar10.11.2025Kaldavatnslaust í hluta Búðahverfis á morgun
Áætlað er að lokunin standi yfir frá 09:00 til 12:00.
Fréttir10.11.2025Nýir og betrumbættir stígar meðfram Hafnarfjarðarvegi
Framkvæmdir á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi, við Súlunes og Hegranes, hefjast á næstu misserum.
Fréttir10.11.2025Bókmenntahátíðin Iceland Noir teygir anga sína í Garðabæinn
Bókmenntahátíðin sem hressir upp á skammdegið, Iceland Noir, teygir anga í Garðabæinn miðvikudaginn 12. nóvember. Viðburðurinn hefst klukkan 20:00 í Sveinatungu, Garðatorgi 7, aðgangur ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Að þessu sinni koma fram rithöfundarnir Chris Whitaker, Stefan Ahnem auk leikarans Will Tudor
Fréttir10.11.2025Uppskeruhátíð kennara og starfsfólks í leik- og grunnskólum
Dagskrá Menntadagsins 2025 var hin glæsilegasta. Boðið var upp á tónlistaratriði, fróðlegan fyrirlestur og fjölbreytt erindi.