Fréttir og tilkynningar
Fréttir10.02.2022Frístundabíllinn stoppar í Miðgarði
Akstursleiðir frístundabílsins í Garðabæ breyttust 7. febrúar sl. þar sem búið er að bæta við stoppi í Miðgarði á öllum þremur leiðum frístundabílsins. Frá og með sunnudeginum 20. febrúar nk. verður hægt að taka strætó, leið 22, sem stoppar við Miðgarð.
Fréttir10.02.2022Tekjutengdur afsláttur af gjöldum
Nú geta foreldrar/forráðamenn með tekjur undir viðmiðunarmörkum sótt um tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Umsóknir um afslátt eru í þjónustugátt Garðabæjar.
Fréttir10.02.2022Íbúum Garðabæjar fjölgar mikið
Íbúum Garðabæjar fjölgaði um 760, eða 4,3 % á tímabilinu frá 1. janúar 2021 til 1. janúar 2022 en það er mesta fjölgun meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttir07.02.2022Gul veðurviðvörun 7.-8. febrúar
Gul veðurviðvörun tekur gildi í dag mánudag 7. febrúar frá kl. 18:00 og varir fram eftir degi á morgun þriðjudag 8. febrúar til kl. 18.
Fréttir07.02.2022Leikskólar og frístundastarf opnar kl. 13 í dag
Veðrið er gengið niður og hafa því skólayfirvöld á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að opna leikskóla klukkan 13:00. Starf frístundaheimila, íþróttastarf, tónlistarskóla og félagsmiðstöðva hefst á sínum hefðbundnu tímum.
Fréttir06.02.2022Rauð veðurviðvörun
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, mánudag 7. febrúar.
Fréttir05.02.2022Fyrsta æfingin í Miðgarði í Vetrarmýri
Miðgarður er heitið á nýju fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri í Garðabæ. Fyrsta æfingin innandyra í húsinu var haldin í morgun laugardaginn 5. febrúar þegar bæjarstjórn Garðabæjar opnaði húsið formlega til æfinga.
Fréttir04.02.2022Smíði undirganga undir Arnarneshæð - kynningarfundur 8. febrúar
Garðabær og Vegagerðin bjóða til íbúakynningar, vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við smíði undirganga undir Arnarneshæð.
Fréttir04.02.2022Ábending um bæjarlistamann Garðabæjar 2022
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum fólks eða félagasamtaka um hugsanlegan bæjarlistamann Garðabæjar 2022.
Fréttir04.02.2022Lífshlaupið 2022
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta.
Fréttir02.02.2022Endurskoðun menntastefnu - samráð við íbúa
Nú er í gangi endurskoðun á gildandi skólastefnu Garðabæjar sem ætlað er að móta í víðtæku samráði við starfsfólk skólanna, börn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, kjörna fulltrúa, starfsfólk og bæjarbúa.
Fréttir01.02.2022Ókeypis aðgangur á sýninguna Sund í Hönnunarsafni Íslands
Þriðjudaginn 1. febrúar verður í Hönnunarsafni Íslands opnuð sýningin Sund. Ekki verður um eiginlega opnun að ræða heldur gestum boðinn ókeypis aðgangur út febrúar.
Fréttir01.02.2022Gissur Páll heim í stofu 2. febrúar kl. 12:15
Fylgist með stofutónleikum Gissurar Páls Gissurarsonar tenórs í gegnumfésbókarsíðu Garðabæjar miðvikudaginn 2. febrúar kl. 12:15 á sama tíma og átti upphaflega að halda hádegistónleika í Tónlistarskólanum.
Fréttir01.02.2022Samræmt sorphirðukerfi á höfuðborgarsvæðinu
Tillögur að samræmdu sorphirðukerfi á höfuðborgarsvæðinu og sérsöfnun á lífrænum úrgangi kynntar: Mikið framfaraskref fyrir íbúa
Fréttir31.01.2022Gul veðurviðvörun frá 13-15 í dag mánudag
GUL VIÐVÖRUN, YELLOW WARNING, STOPIEŃ ZAGROŻENIA 1 (ŻÓŁTY ALERT) Gul veðurviðvörun er í gildi í dag mánudag 31. janúar frá kl 13:00 til 15:00. Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.