Fréttir og tilkynningar
Fréttir14.09.2022Hvaða starfsemi vilt þú sjá í Miðgarði?
Fjölnota íþróttahúsið Miðgarður var tekið í notkun snemma á þessu ári og hafa frjálsu félögin í Garðabæ getað nýtt húsið frá opnun þess. Enn á þó eftir að ráðstafa tveimur hæðum sem liggja sunnan megin í húsinu sem hvor um sig er um 1.500 fermetrar að stærð. Íþrótta- og tómstundaráð óskar nú eftir ábendingum frá íbúum um hvernig ráðstafa megi þessu rými
Fréttir12.09.2022Mygla greinist í leikskólanum Bæjarbóli
Mygla hefur greinst í leikskólanum Bæjarbóli í Garðabæ. Myglan greindist í glerrými sem tengir saman byggingar auk þess sem mygla greindist á afmörkuðu svæði í deildinni Hraunholt.
Fréttir09.09.2022Nýr leikskóli rís við Holtsveg í Urriðaholti
Fimmtudaginn 8. september sl. var tekin skóflustunga að nýjum leikskóla, Urriðaból, við Holtsveg í Urriðaholti í Garðabæ. Það voru þau Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Hulda Jónsdóttir arkitekt leikskólans og Sólveig Sigurþórsdóttir fjármálastjóri Þarfaþings ehf. sem byggir skólann sem tóku skóflustunguna. Þeim til aðstoðar var góður hópur leikskólabarna úr leikskólanum Hæðarbóli sem einnig söng nokkur lög fyrir viðstadda.
Fréttir09.09.2022Vel heppnaður fundur í Urriðaholtsskóla
Í september verður blásið til íbúafunda undir yfirskriftinni ,,Hvað finnst þér?“ með Almari Guðmundssyni bæjarstjóra Garðabæjar og sviðsstjórum hjá bænum. Fyrsti fundurinn var haldinn miðvikudagskvöldið 7. september sl. í Urriðaholtsskóla þar sem íbúar Urriðaholts voru sérstaklega velkomnir.
Fréttir08.09.2022Táknatréð flutt á nýjan stað
Listaverkið Táknatréð var fyrsta mannvirkið sem reis á Urriðaholti. Nú hefur það verið sett upp aftur eftir nokkurra ára geymslu og viðgerðir en því hefur verið komið fyrir á Háholti Urriðaholts, rétt hjá kaffihúsinu Dæinn.
Fréttir08.09.2022Ný gatnamót Álftanesvegar og Garðahraunsvegar
Unnið er að hönnun með Vegagerðinni að nýjum gatnamótum á Álftanesvegi. Þau gatnamót munu vera staðsett nokkuð austar inn á Álftanesveginum en núverandi gatnamót.
Fréttir08.09.2022Styrkir úr sjóðnum Sóleyju
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Sóleyju vegna nýsköpunar- og samstarfsverkefna, annars vegar á sviði umhverfis- og samgöngumála og hins vegar á sviði velferðar- og samfélags.
Fréttir05.09.2022Nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk rís við Brekkuás
Við Brekkuás 2 í Ásahverfi í Garðabæ verður reistur sjö íbúða búsetukjarni fyrir fatlað fólk, ásamt starfsmannaaðstöðu. Föstudaginn 2. september sl. tók Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fyrstu skóflustungu að búsetukjarnanum.
Fréttir01.09.2022Góð staða Garðabæjar í árshlutauppgjöri
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 30. ágúst sl. var sex mánaða uppgjör Garðabæjar fyrir tímabilið janúar til júní 2022 lagt fram.
Fréttir31.08.2022Samningur um frístundakstur
Í ágúst var skrifað var undir samstarfssamning við Hópferðamiðstöðina um frístundaakstur i Garðabæ til ársins 2024.
Fréttir31.08.2022Útskipting götuljósa á Vífilsstaðavegi
Á síðustu vikum hefur götuljósum verið skipt út á Vífilsstaðavegi. Um er að ræða 90 nýja led-lampa sem hafa verið settir upp á Vífilsstaðaveginum.
Fréttir30.08.2022Hvað finnst þér? Íbúafundir í september
Í september verður blásið til íbúafunda undir yfirskriftinni ,,Hvað finnst þér?“ með Almari Guðmundssyni bæjarstjóra Garðabæjar og sviðsstjórum hjá bænum. Íbúafundirnir verða haldnir miðvikudagana 7., 14. og 21. september og þriðjudaginn 27. september kl. 19:30-21:00 í mismunandi skólum bæjarins.
Fréttir29.08.2022Menningarhaust að hefjast í Garðabæ
Skemmtilegir viðburðir fyrir alla fjölskylduna, fyrirlestrar um áhugaverð málefni, allskyns tónlist og stemning einkennir menningardagskrá haustsins í Garðabæ sem er nú komin á prent og verður borin út á næstu dögum.
Fréttir26.08.2022Umhverfisviðurkenningar Garðabæjar 2022
Fimmtudaginn 25. ágúst voru umhverfisviðurkenningar Garðabæjar fyrir árið 2022 afhentar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi.
Fréttir24.08.2022Upphaf skólaárs í Garðabæ
Skólasetning grunnskólanna í Garðabæ var í gær þriðjudaginn 23. ágúst og hófst kennsla skv. stundaskrá í dag 24. ágúst. Í vetur hefja 2570 nemendur nám í 1.-10. bekk í öllum grunnskólum í Garðabæ. Þar af er 231 barn er skráð í 1. bekk.