Fréttir og tilkynningar
Fréttir17.08.2022Fundir bæjarstjórnar á haustönn
Bæjarstjórn Garðabæjar kemur saman til fyrsta fundar eftir sumarleyfi fimmtudaginn 18. ágúst nk. Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæjar.
Fréttir17.08.2022Nýting hvatapeninga
Nú þegar margar íþróttir og frístundir fara af stað aftur eftir sumarfrí, minnum við forráðamenn að nýta hvatapeninga. Hvatapeningar ársins 2022 eru 50.000 krónur á barn en öll börn á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Garðabæ, fá hvatapeninga, þ.e. börn fædd á árunum 2004-2017.
Fréttir17.08.2022Innritun í leikskóla Garðabæjar gengur vel
Innritun í leikskóla Garðabæjar gengur vel en fyrir komandi haust hefur börnum fæddum í júní, júlí og ágúst árið 2021 verið úthlutað leikskóladvöl í Garðabæ.
Fréttir12.08.2022Bygging búsetukjarna við Brekkuás
Við Brekkuás 2 verður reistur sjö íbúða búsetukjarni fyrir fatlað fólk, ásamt starfsmannaaðstöðu. Í dag, föstudaginn 12. ágúst var undirritaður verksamningur við Gunnar Bjarnason ehf. um verkið en fyrirtækið var lægstbjóðandi í byggingu hússins í útboði fyrr í sumar.
Fréttir11.08.2022Malbikun á Vífilsstaðavegi
Á morgun, föstudaginn 12.ágúst mun Loftorka vinna við malbikun á Vífilsstaðavegi, milli Reykjanesbrautar og Karlabrautar, ef veður leyfir.
Fréttir11.08.2022Krókur opinn á sunnudögum í sumar
Eins og undanfarin sumur er opið hús í burstabænum Króki alla sunnudaga í sumar frá kl. 12-17. Enn gefst því tækifæri til að heimsækja Krók næstu sunnudaga í ágúst.
Fréttir11.08.2022Staða framkvæmda í Garðabæ
Garðabær er vaxandi bær en undanfarin ár hefur íbúum fjölgað mikið samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Miklar framkvæmdir hafa verið í bænum undanfarin ár og eru enn.
Fréttir05.08.2022Framkvæmdir við leikskólann Urriðaból ganga vel
Framkvæmdir við nýjan leikskóla í Urriðaholti, Urriðaból, ganga vel og samkvæmt áætlun. Búið er að ráða í margar stöður í leikskólanum, þar á meðal leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra og sex deildarstjóra.
Fréttir04.08.2022Hinsegin dagar
Hinsegin dagar eru haldnir hátíðlegir dagana 2. -7. ágúst. Hátíðin fagnar fjölbreytileikanum með fjölbreyttum viðburðum á sviði menningar og fræðslu. Hinsegin dagar vaxið og dafnað síðustu ár og eru í dag ein fjölsóttasta hátíð landsins.
Fréttir03.08.2022Álftaneslaug lokuð í tvær vikur
Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð frá og með 8. ágúst 2022 í um tvær vikur vegna viðhaldsvinnu við laugarnar og þrifa.
Fréttir02.08.2022Jarðskjálftahrina -íbúar hugi að lausa- og innanstokksmunum
Öflugir jarðskjálftar hafa fundist undanfarna sólarhringa á suðvesturhorninu. Í gærkvöldi reið skjálftahrina yfir sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu m.a. fundu vel fyrir. Íbúar eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum.
Fréttir02.08.2022Samningur um byggingu 2. áfanga Urriðaholtsskóla undirritaður
Undirritaður hefur verið verksamningur milli Garðabæjar og ÞG verk vegna byggingu 2. áfanga Urriðaholtsskóla
Fréttir28.07.2022Hinsegin viðburðir í Garðabæ
Í tilefni hinsegin daga í byrjun ágúst verður boðið upp á viðburði á Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands. Söfnin verða skreytt regnbogafánum og hinsegin bókmenntir verða áberandi á bókasafninu.
Fréttir28.07.2022,,Komdu í göngu í Garðabæ"
Þótt veðrið í sumar hafi ekki verið með allra besta móti þá er samt alltaf gott gönguveður. Í Garðabæ eru margar skemmtilegar gönguleiðir bæði í þéttbýli sem og utan.
Fréttir28.07.2022Blómum prýtt hringtorg við Bessastaði
Stórt hringtorg sem markar aðkomu inn á Álftanesið, þar sem Álftanesvegur mætir Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Bessastaðavegi í átt að forsetasetrinu á Bessastöðum, hefur nú tekið á sig nýja og betri mynd með fallegum gróðri.