Afsláttur af gjöldum fyrir barnafjölskyldur

Ef fleiri en eitt barn eru í dvöl á leikskóla, í frístundaheimili eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið.  Foreldrar með tekjur undir viðmiðunarmörkum geta sótt um tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra.

Systkinafsláttur 

Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá 50% afslátt af grunngjaldi eldra/elsta barnsins og 75% af grunngjaldi fyrir hvert barn umfram tvö.

Afsláttur er veittur af grunngjaldi, fullt verð er greitt fyrir fæði.

Sækja þarf um systkinaafsláttinn með því að fylla út rafræna umsókn um systkinaafslátt. ATH senda þarf inn eina umsókn fyrir hvert barn.

Rafræn umsókn til að sækja um systkinafslátt (ein umsókn fyrir hvert barn) má finna hér á þjónustugátt Garðabæjar.


Tekjutengdur afsláttur

  • Nýjar reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 20. janúar 2022. Reglurnar eru settar til að koma til móts við barnafjölskyldur með lágar tekjur með það að markmiði að bæta kjör fjölskyldna.
  • Foreldrar/forráðamenn með tekjur undir viðmiðunarmörkum geta sótt um tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra.
    Afslátturinn er 40% af almennu dvalargjaldi.
  • Viðmiðunartekjur til að fá afsláttinn eru miðaðar við heildartekjur heimilis þar sem meðaltekjur eru allt að 865.469 kr á mánuði (m.v. launavísitölu 1. janúar 2023).
    Miðað er við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu þrjá mánuði þegar umsókn er send inn.
  • Systkinaafsláttur verður áfram óbreyttur þar sem allir foreldrar geta sótt um afslátt fyrir systkini af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá 50% afslátt af grunngjaldi eldra/elsta barnsins og 75% af grunngjaldi fyrir hvert barn umfram tvö. Foreldrar sem eiga rétt á afslætti skv. tekjutengingu geta því fengið 40% afslátt af gjöldum fyrir eitt barn, 50% afslátt af barni tvö og 75% afslátt af þriðja barni og fleiri börnum.
  • Rafrænar umsóknir um afslátt af leikskólagjöldum, afslátt af gjöldum frístundaheimila og afslátt af gjöldum til dagforeldra eru í þjónustugátt Garðabæjar: Sjá: Umsóknir - 04 Afsláttur af gjöldum
  • Sækja þarf um afsláttinn fyrir 15. dag hvers mánaðar og skal fylgja yfirlit úr staðgreiðsluskrá sem sýnir tekjur síðustu þrjá mánuði. Hægt er nálgast staðgreiðsluyfirlit á þjónustuvef skattsins, skattur.is
  • Ef umsókn berst fyrir 15. dag hvers mánaðar kemur afsláttur til framkvæmdar í næsta mánuði á eftir. Ekki þarf að sækja um mánaðarlega en gert er ráð fyrir að endurnýja þurfi umsókn um tekjutengdan afslátt einu sinni á ári. Afsláttur er veittur til og með 30. júní og því þarf að sækja aftur um fyrir 15. júlí á hverju ári.