Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.

Bókasafn Garðabæjar
Garðatorg 7
Sími: 591 4550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
Opnunartími
Virka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00
Upplýsinga- og menningarmiðstöð
Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.
Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
Fjölbreyttir viðburðir bókasafnsins:

Aðstaðan
Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti á báðum söfnum. Á aðalsafni hafa gestir aðgang að tölvum, prentara, ljósritun, vínylprentara, þrívíddarprentara og saumavél. Á 2. hæð safnsins er lesstofa, þar eru nokkrir lesbásar, hópvinnuborð og nóg af innstungum fyrir fartölvur. Á bókasafninu er einnig næðisklefi sem gestir geta fengið afnot af endurgjaldslaust í allt að tvær klukkustundir í senn. Þó er nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslunni eða á netfangið: bokasafn@gardabaer.is.
Lifandi Bókasafn








Álftanessafn
Álftanessafn er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.
Viðburðadagatal
Bókmenntaganga á Garðaholti
Bókmenntaganga með rithöfundinum Rögnu Sigurðardóttir sem segir frá staðháttum og sögu á Garðaholti og Álftanesi, les uppúr og fjallar um skáldsöguna sína Útreiðartúrinn á lifandi og skemmtilegan hátt.
Viðburðir21.05.2026Garðakirkja
fimmtudagur, 21. maí 2026 kl. 18:00 - 19:00
Ljósaborð og segulkubbar
Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti kubbanna og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum þá.
Viðburðir23.05.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 23. maí 2026 kl. 11:00 - 14:30
Opnunarhátíð Sumarlesturs | Lestrardagbækur og Blaðrarinn
Skráning í lestrarátakið hefst, lestrardagbækur afhentar og Blaðrarinn býr til skemmtileg blöðrudýr. Lesum saman í sumar!
Viðburðir30.05.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 30. maí 2026 kl. 12:00 - 14:00
Legókubbafjör
Í sumar (22.júní til 20.ágúst) bjóðum við upp á skemmtilega Legókubba stund á bókasafninu alla mánudagsmorgna frá kl. 10–12 fyrir börn 6 ára og eldri.
Viðburðir22.06.2026Bókasafn Garðabæjar
mánudagur, 22. júní 2026 kl. 10:00 - 12:00
Útifjör á torginu alla þriðjudaga í sumar
Í boði verða krítar, húlahringir, útikeila og ýmislegt fleira skemmtilegt sem hvetur til hreyfingar, samveru og sköpunar.
Viðburðir23.06.2026Bókasafn Garðabæjar
þriðjudagur, 23. júní 2026 kl. 10:00 - 17:00
Ljósaborð og segulkubbar
Alla miðvikudaga í sumar (22.júní til 20.ágúst) bjóðum við börnum að koma og leika sér með ljósaborð og segulkubba.
Viðburðir24.06.2026Bókasafn Garðabæjar
miðvikudagur, 24. júní 2026 kl. 10:00 - 17:00
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.