Frístundaheimili
Nemendur í 1.–4. bekk geta tekið þátt í tómstundastarfi á frístundaheimilum við sinn skóla eftir að skóladegi lýkur. Innifalið í gjaldi frístundar er síðdegishressing. Boðið er upp á ávexti, grænmeti, brauð og holla drykki.

Opnunartími
Venjulegur opnunartími er frá lokum skóladags til 16:30. Á þeim dögum þegar kennsla fellur niður er opið frá 8:30. Foreldrar þurfa að skrá barnið sérstaklega þá daga.
Opið er allan daginn:
- á skipulagsdögum
- á viðtalsdögum
- í vetrarfríi
- í jóla- og páskafríi (alla virka daga nema á aðfangadag og gamlársdag)
Frístundaheimilin eru lokuð einn dag á skólaári, á Menntadegi Garðabæjar. Þú getur séð alla helstu daga í skóladagatalinu.
Frístundaheimili

Frístundaheimilið Álftamýri
Álftanesskóli
Sími: 540 4780 og 821 5455
fristund@alftanesskoli.is
Frístundaheimilið Krakkakot
Flataskóli
Sími: 820 8557
flataskoli-fristund@flataskoli.is
Frístundaheimilið Regnboginn
Hofsstaðaskóli
Sími: 565 7033 og 617 1598
hofsstadaskoli-fristund@hofsstadaskoli.is
Frístundaheimilið Sælukot
Sjálandsskóli
Sími: 617 1508
saelukot@sjalandsskoli.is
Frístundaheimilið Urriðakot
Vinastræti 1-3
591 9500
fristund@urridaholtsskoli.is
Skrá barn á frístundaheimili
Við leggjum okkur fram við að öll börn sem vilja fái pláss á frístundaheimilum.
Skráning á frístundaheimili er í gegnum Völu vetrarfrístund. Skráningin gildir í heilt skólaár (ágúst til júní). Best er að skrá barn á vorin fyrir næsta skólaár.
Ágústfrístund fyrir börn fædd 2019 og 2020
Öllum börnum sem fædd eru árið 2020 verður boðið að hefja dvöl í frístundaheimili grunnskólans 14. – 21. ágúst 2026. Með þessu móti gefst börnunum færi á að kynnast skólanum sínum og verða örugg í nýju umhverfi.
Nemendum sem eru fæddir 2019 og eru að hefja nám í 2. bekk verður einnig boðin dvöl í frístund í fimm virka daga fyrir skólasetningu grunnskólans, þ.e. 17.-21. ágúst.
- Frístundaheimilin verða opin sex virka daga fyrir skólasetningu grunnskólans, þ.e. 14.-21. ágúst og er það eingöngu fyrir þau börn (fædd 2020) sem eru að hefja skólagöngu í grunnskóla.
- Nemendum sem eru fæddir 2019 og eru að hefja nám í 2. bekk verður einnig boðin dvöl í frístund í fimm virka daga fyrir skólasetningu grunnskólans, þ.e. 17.-21. ágúst.
- Daglegur opnunartími verður frá 9:00 – 16:00. Skólasetningardagur grunnskólanna er mánudaginn 24. ágúst, þann dag er frístundaheimilið lokað. Þann 25. ágúst hefst hefðbundið skólahald og frístundaheimili verða opin fyrir nemendur í 1.-4. bekk sem þar eru skráðir.
- Fyrir 6 daga vistun hjá börnum fædd 2020 verður innheimt frístundagjald kr. 16.650.- auk þess sem foreldrar greiða fyrir 250.- á dag fyrir síðdegishressingu. Heildarkostnaður fyrir vikuna er því kr. 18.150.-
- Fyrir 5 daga vistun hjá börnum fædd 2019 verður innheimt frístundagjald kr. 13.870.- auk þess sem foreldrar greiða 250.- á dag fyrir síðdegishressingu. Heildarkostnaður fyrir vikuna er því kr. 15.120.
- Gjaldið er óháð dvalartíma barns og ekki er veittur afsláttur af gjaldi fyrir þessa viku. Við bendum á að þessi skráning gildir fyrir aðeins þessa daga í ágúst. Nemendur koma með morgun- og hádegisnesti en fá síðdegishressingu í frístundinni.
- Reikningur fyrir ágústfrístund berst í heimabanka 1. ágúst. Það foreldri sem sækir um frístundina verður sjálfkrafa greiðandi.
- Skráning hefst þriðjudaginn 5. maí. Það er á ábyrgð foreldra að sjá til þess að börnin séu skráð á frístundaheimili þessa aukaviku. Hér má nálgast leiðbeiningar um skráningu í ágústfrístundina.
- Síðasti dagur til innritunar vegna þessarar aukaviku á frístundaheimili er 1. júní.
Skráning í lengri viðveru
Ef færri en 12 börn eru skráð í frístundaheimilið á dögum með lengri viðveru er starfsemin sameinuð öðru frístundaheimili. Starfsfólk frá frístundaheimili nemenda fylgir þeim alltaf á milli staða.
Skráningarleiðbeiningar
- Skráning er á frístundavef Völu. Mælt er með því að nota vefinn á tölvu.
- Gættu þess að velja Garðabæ efst í vinstra horninu.
- Veldu lengd viðveru og þá daga sem þú vilt skrá barnið.
- Sendið inn skráningu.
Þú færð staðfestingu í tölvupósti þegar skráningin hefur heppnast. Það er á ábyrgð foreldra að passa upp á að skráning sé staðfest.
Breyting á dvalartíma
Breytingar á dvalartíma eru skráðar í Völu. Breyta þarf dvalartíma fyrir 20. hvers mánaðar til að þær taki gildi næsta mánuð á eftir.

Systkina- og tekjutengdur afsláttur
Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af daggæslu.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.