Beint í efni

Fé­lags­mið­stöðvar grunn­skóla

Félagsmiðstöðvar Garðabæjar bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10–16 ára upp á fjölbreytt félagsstarf. Þar býðst tækifæri til samveru og að stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra leiðbeinenda. Mikið og gott samstarf er á milli félagsmiðstöðva og nemendum er frjálst að sækja starf í þeim öllum.

Hlutverk félagsmiðstöðva

Hlutverk félagsmiðstöðvanna er að styðja við börn og unglinga með fjölbreyttu tómstundastarfi, hópefli og hópastarfi.

Markmiðið er að skapa tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra frístundaleiðbeinenda. Leiðarljós starfsins er að efla félagsfærni og sjálfsmynd barna og unglinga og stuðla þannig að jákvæðum þroska þeirra og vellíðan.

Starfið byggir á hugmyndafræði barna- og unglingalýðræðis þar sem rödd ungmenna og áhugamál eru höfð að leiðarljósi við mótun starfsins og skipulagningu viðburða.

Mikið og gott samstarf er á milli félagsmiðstöðva í Garðabæ og nemendum er frjálst að sækja starf í þeim öllum.

Hlutverk forstöðumanns

Forstöðumaður stýrir félagsmiðstöðinni og ber ábyrgð á starfinu. Hann styður við bakið á nemendum og aðstoðar þá við undirbúning starfsins.

Verkefni forstöðumanns

  • Forvarnir: Forvarnarmál með námsráðgjafa.
  • Skólastarf: Verkefni eins og hópastarf og hópefli eftir þörfum.

Starfsreglur félagsmiðstöðva

Markmið starfsfólks er að tryggja vellíðan og öryggi allra barna og unglinga í starfi sínu. Koma skal fram við aðra af vinsemd og virðingu og allir eru velkomnir í félagsmiðstöðvar á eigin forsendum.