Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.

Bókasafn Garðabæjar
Garðatorg 7
Sími: 591 4550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
Opnunartími
Virka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00
Upplýsinga- og menningarmiðstöð
Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.
Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
Fjölbreyttir viðburðir bókasafnsins:

Aðstaðan
Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti á báðum söfnum. Á aðalsafni hafa gestir aðgang að tölvum, prentara, ljósritun, vínylprentara, þrívíddarprentara og saumavél. Á 2. hæð safnsins er lesstofa, þar eru nokkrir lesbásar, hópvinnuborð og nóg af innstungum fyrir fartölvur. Á bókasafninu er einnig næðisklefi sem gestir geta fengið afnot af endurgjaldslaust í allt að tvær klukkustundir í senn. Þó er nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslunni eða á netfangið: bokasafn@gardabaer.is.
Lifandi Bókasafn








Álftanessafn
Álftanessafn er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.
Viðburðadagatal
Sögur og söngur með Þórönnu Gunný
Þóranna syngur með börnunum helstu leikskólalögin og fær hópinn til að dansa með.
Viðburðir02.05.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 2. maí 2026 kl. 11:15 - 12:00
Ljósaborð og segulkubbar
Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti kubbanna og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum þá.
Viðburðir08.05.2026Bókasafn Garðabæjar
föstudagur, 8. maí 2026 kl. 16:00 - 18:00
Fjör í fríum | Blómaföndur og bíó
Bókasafnið er opið kl. 9 - 19 Hægt að skoða bækur, lita myndir, spila og eiga notalegar stundir allan daginn.
Viðburðir15.05.2026Bókasafn Garðabæjar
föstudagur, 15. maí 2026 kl. 10:00 - 14:30
Blómaprentun | Föndursmiðja fyrir börnin
Verið velkomin í blómaprentun með Auði Helgadóttur hönnuði. Hægt er að koma með sín eigin blóm og laufblöð, en við verðum einnig með blóm, laufblöð og annað efni til reiðu inná safni.
Viðburðir16.05.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 16. maí 2026 kl. 12:00 - 14:00
Bókmenntaganga á Garðaholti
Bókmenntaganga með rithöfundinum Rögnu Sigurðardóttir sem segir frá staðháttum og sögu á Garðaholti og Álftanesi, les uppúr og fjallar um skáldsöguna sína Útreiðartúrinn á lifandi og skemmtilegan hátt.
Viðburðir21.05.2026Garðakirkja
fimmtudagur, 21. maí 2026 kl. 18:00 - 19:00
Ljósaborð og segulkubbar
Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti kubbanna og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum þá.
Viðburðir23.05.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 23. maí 2026 kl. 11:00 - 14:30
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.