Skipulag
Skipulag er vettvangur til að móta heildarsýn um hvernig land skal nýtt, hvernig byggð skal þróast og framtíðarsýn innviða.


Skipulag í kynningu
Sjáðu þau skipulagsmál í Garðabæ sem eru í kynningu á vef Skipulagsgáttar.
Aðalskipulag Garðabæjar
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sveitarfélagsins þar sem fram kemur stefna bæjarins um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar á minnst 12 ára tímabili.
Deiliskipulag
Deiliskipulag er áætlun fyrir afmarkað svæði sem myndar heildstæða einingu, svo sem hverfi, hverfishluta, götureit eða húsaþyrpingar.
Samgöngusáttmáli
Það voru tímamót þegar ríkið og sveitarfélögin 6 á höfuðborgarsvæðinu gerðu samkomulag um sameiginlega sýn um samgönguframkvæmdir til framtíðar. Haustið 2024 var samgöngusáttmálinn uppfærður og lengdur með samræmdum tíma- og kostnaðaráætlunum og fjármögnun til ársins 2040.
Ertu með fyrirspurn um skipulagsmál?
Skipulagsdeild umhverfissviðs veitir bæjarbúum, bæjarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um skipulagsmál.