Fyrirspurn um skipulagsmál
Skipulagsvinna Garðabæjar byggir á gildandi skipulagslögum og stefnu landsskipulags og svæðisskipulags þegar það á við.
Skipulagsdeild
Skipulagsdeild umhverfissviðs veitir bæjarbúum, bæjarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um skipulagsmál. Skipulagsstjóri fer með málsmeðferð skipulagsmála og starfar í umboði bæjarstjórnar.
Senda fyrirspurn eða umsókn um skipulagsbreytingu
Hægt er að senda inn fyrirspurn eða formlega umsókn til skipulagsnefndar. Erindin geta til dæmis varðað:
- Breytingar á aðalskipulagi eða deiliskipulagi.
- Breytingar eða hönnun á lóð.
- Staðsetning og stærð smáhýsa.
- Breytingar og staðsetningar á einstaka starfsemi.
- Niðurrif bygginga og annarra mannvirkja.
- Breyting á fjölda eða fyrirkomulagi bílastæða.
Fyrirspurn um skipulagsmál
Þú getur byrjað á því að senda fyrirspurn án þess að fullbúnir uppdrættir fylgi.
Starfsfólk umhverfissviðs veitir frekari upplýsingar um skipulagsmál og skipulagsferlið.
Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Með umsókn þurfa að fylgja:
- breytingaruppdrættir deiliskipulags
- ljósrit af lóðablöðum
- skýringarmyndir ef þörf krefur
Gjöld vegna skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis eru samkvæmt gjaldskrá.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fyrirspurnir og umsóknir eru lagðar fyrir á afgreiðslufundum skipulagsstjóra sem eru haldnir alla jafna á tveggja vikna fresti.
Til að mál verði tekið fyrir á afgreiðslufundi þurfa fullnægjandi gögn að hafa borist í síðasta lagi í lok dags á fimmtudegi vikuna fyrir fund.
Fundir skipulagsnefndar
Fundir skipulagsnefndar eru alla jafna á tveggja vikna fresti, 2. og 4. fimmtudag í mánuði.
Til að mál verði tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar þurfa fullnægjandi gögn að hafa borist í síðasta lagi í lok dags á fimmtudegi vikuna fyrir fund.
Embætti skipulagsstjóra
Skipulagsstjóri starfar samkvæmt skipulagslögum, skipulagsreglugerð og samþykkt bæjarstjórnar um embættisafgreiðslur, sem og öðrum lögum, reglugerðum og samþykktum um skipulagsmál í Garðabæ.
Gjaldskrá
Liður | 2012 (kr.) | 2025 (kr.) | Athugasemd |
|---|---|---|---|
Afgreiðslugjald (aðalskipulagsbreytingar) | 9.500 | 16.454 | |
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti (1. mgr. 36. gr.) | 130.000 | 225.156 | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður (1. mgr. 36. gr.) | 120.000 | 207.836 | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður (2. mgr. 36. gr.) | 60.000 | 103.918 | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður (2. mgr. 38. gr.) | 120.000 | 207.836 | Nýtt deiliskipulag |
Grenndarkynning – umsýslu- og auglýsingakostnaður (44. gr.) | 30.000 | 51.959 | |
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka | 110.000 | 190.516 | Lög um mat á umhverfisáhrifum |
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir | 65.000 | 112.578 |
Forsendur og skýringar
• Fjárhæðir miðast við byggingarvísitölu í janúar 2012 (112,3) og eru uppfærðar til janúar 2025 (194,5).
• Vinna samkvæmt reikningi byggir á áætlun skipulagstjóra og getur ekki verið hærri en samþykkt áætlun.