17. feb. 2022

Vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar

Dagana 21.-25. febrúar verður vetrarfrí í grunnskólum í Garðabæ. Fyrir þá sem ætla ekki að ferðast í vetrarfríinu er um að gera að njóta dagskrár í heimabænum.

  • Snjómokstur
    Snjómokstur og hálkuvarnir eru í fullum gangi unnið frá nóttu fram eftir degi. Ábendingar um snjómokstur má senda í gegnum ábendingavef Garðabæjar.

Dagana 21.-25. febrúar verður vetrarfrí í grunnskólum í Garðabæ. Fyrir þá sem ætla ekki að ferðast í vetrarfríinu er um að gera að njóta dagskrár í heimabænum.

Fjölbreytt dagskrá fyrir börn í Bókasafni Garðabæjar

Fjölbreytt dagskrá verður í boði í Bókasafni Garðabæjar þessa daga þar sem boðið verður upp á bíó, ratleik og föndur alla dagana. Á vef Bókasafnsins má sjá nánari tímasetningu á bíósýningum og smiðjum.

Sýningar í Hönnunarsafninu

Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 og er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17. Þar er hægt að skoða fjölbreyttar sýningar safnsins í vetrarfríinu. Hægt er að kíkja á sýninguna Sund eða á vinnustofudvölina STUDIO ALLSBER.  Ókeypis aðgangur fyrir yngri en 18 ára.

Ókeypis í sund fyrir yngri en 17 ára

Það er ókeypis aðgangur í sundlaugar Garðabæjar fyrir yngri en 17 ára. Hér má sjá afgreiðslutíma í Ásgarðslaug og Álftaneslaug.

Frístundabíllinn keyrir í vetrarfríinu

Frístundabíll Garðabæjar keyrir samkvæmt áætlun í næstu viku, 21.-25. febrúar í vetrarfríi grunnskóla í Garðabæ. Nánari upplýsingar um leiðarkerfi má finna hér.

Gönguleiðir í Garðabæ

Fjölmargar fallegar gönguleiðir eru í Garðabæ sem hægt er að njóta í vetrarfríinu. Í Wappinu er hægt að finna upplýsingar um þær.