Beint í efni

8. fundur

30.06.2023
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

8. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

30.06.2023

Kl. 11.00 - 11.15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2306401

01

Vesturtún 52 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um garðhýsi á lóð sem er 12,8 m2 að flatarmáli og vegghæð 2,05 m en mænishæð 2,8 m. Garðhýsið er staðsett nærri lóðarmörkum. Ekki er kveðið á um garðhýsi í deiliskipulagi Vesturtúns og gilda því ákvæði byggingarreglugerðar sem heimilar garðhýsi allt að 15 m2 að flatarmáli.

Fyrir hönd Garðabæjar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við staðsetningu garðhýsis nær lóðarmörkum að bæjarlandi en 3 metrar en mælir með því að á milli garðhýsis og lóðarmarka sé rými fyrir runnagróður m.a. til að girða fyrir veggjakrot.

Málsnúmer 2306403

02

Vinastræti 1-3 - deiliskipulagsbreyting Urriðaholtsskóli lóð

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts, Urriðholtsskóli, sem gerir ráð fyrir að eftirfarandi ákvæði bætist við greinargerð deiliskipulagsins: "Heimilt er að nýta skólalóð utan sem innan byggingarreits fyrir færanlegar kennslustofur til bráðabirgða enda uppfylli þær kröfur byggingarreglugerðar um brunavarnir. Að öðru leyti gilda áður útgefnir skilmálar."

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í samræmi við 2.mgr. 43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2306249

03

Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um viðbyggingu, sólskýli. Stærð sólskýlis á að vera 26,9 m². Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,34 og er nýtingarhlutfall heimilt allt að 0,4 samkvæmt deiliskipulagi Hraunsholts eystra.

Sólskýlið er innan byggingarreits. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt hvað skipulagsþátt byggingarinnar varðar.

Málsnúmer 2304220

04

Ljósakur 6 ( íb. 01 0201) - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á gluggum á suðurhlið í kjallara fjölbýlishússins. Tekið er fram að gluggarnir verði með sandblásnu gleri.

Stækkun glugga þýðir að ekki er hægt að líta á húsið sem tveggjahæða hús með kjallara og kallar það því á deiliskipulagsbreytingu. Hvort gluggar eru sandblásnir eða ekki breytir ekki það miklu að hægt sé að samþykkja byggingarleyfis án deiliskipulagsbreytingar.

Skipulagsstjóri vísar til fyrri bókunar skipulagsnefndar frá 27.ágúst 2020 en þar segir:

Lögð fram ósk eigenda einnar íbúðar í fjölbýlishúsinum um að skipulagsnefnd endurskoði svar sitt við erindi sem barst frá eigendum árið 2018. Óskað er eftir frekari rökstuðningi.

Svar skipulagsnefndar var eftirfarandi: "Samkvæmt tillögu verður húsið 3 hæða í stað tveggja hæða og kallar á deiliskipulagsbreytingu. Þeirri deiliskipulagsbreytingu er hafnað þar sem að breytingin hefur áhrif á hús við Hjálmakur en eigendur þeirra hafa áður lýst sig andsnúna þeirri útfærslu."

Skipulagsnefnd vísar til fyrra svars og minnir á að á sínum tíma hafi verið skoðað að heimila íverurými í kjallara hússins en niðurstaðan hafi verið sú að það hefði neikvæð áhrif fyrir aðliggjandi hús við Hjálmakur. Húbyggjendur hafið síðan farið þá leið að ganga þannig frá lóð hússins að útveggir kjallara er ofanjarðar að neðanverðu og því skiljanlegt að eigendum þyki eðlilegt að breyta notkun kjallarans. Það breytir ekki því að eigendur húsa við Hjálmakur eiga að geta vænst þess að deiliskipulag haldi. Við Ljósakur 2 háttar þannig til að engin hús hús standa neðan við og grenndaráhrif því óveruleg.