Ljósakur 6 ( íb. 01 0201) - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
8. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á gluggum á suðurhlið í kjallara fjölbýlishússins. Tekið er fram að gluggarnir verði með sandblásnu gleri.
Stækkun glugga þýðir að ekki er hægt að líta á húsið sem tveggjahæða hús með kjallara og kallar það því á deiliskipulagsbreytingu. Hvort gluggar eru sandblásnir eða ekki breytir ekki það miklu að hægt sé að samþykkja byggingarleyfis án deiliskipulagsbreytingar.
Skipulagsstjóri vísar til fyrri bókunar skipulagsnefndar frá 27.ágúst 2020 en þar segir:
Lögð fram ósk eigenda einnar íbúðar í fjölbýlishúsinum um að skipulagsnefnd endurskoði svar sitt við erindi sem barst frá eigendum árið 2018. Óskað er eftir frekari rökstuðningi.
Svar skipulagsnefndar var eftirfarandi: "Samkvæmt tillögu verður húsið 3 hæða í stað tveggja hæða og kallar á deiliskipulagsbreytingu. Þeirri deiliskipulagsbreytingu er hafnað þar sem að breytingin hefur áhrif á hús við Hjálmakur en eigendur þeirra hafa áður lýst sig andsnúna þeirri útfærslu."
Skipulagsnefnd vísar til fyrra svars og minnir á að á sínum tíma hafi verið skoðað að heimila íverurými í kjallara hússins en niðurstaðan hafi verið sú að það hefði neikvæð áhrif fyrir aðliggjandi hús við Hjálmakur. Húbyggjendur hafið síðan farið þá leið að ganga þannig frá lóð hússins að útveggir kjallara er ofanjarðar að neðanverðu og því skiljanlegt að eigendum þyki eðlilegt að breyta notkun kjallarans. Það breytir ekki því að eigendur húsa við Hjálmakur eiga að geta vænst þess að deiliskipulag haldi. Við Ljósakur 2 háttar þannig til að engin hús hús standa neðan við og grenndaráhrif því óveruleg.