Beint í efni

Vinastræti 1-3 - deiliskipulagsbreyting Urriðaholtsskóli lóð

Málsnúmer 2306403

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts, Urriðholtsskóli, sem gerir ráð fyrir að eftirfarandi ákvæði bætist við greinargerð deiliskipulagsins: "Heimilt er að nýta skólalóð utan sem innan byggingarreits fyrir færanlegar kennslustofur til bráðabirgða enda uppfylli þær kröfur byggingarreglugerðar um brunavarnir. Að öðru leyti gilda áður útgefnir skilmálar."
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í samræmi við 2.mgr. 43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.