7. (1916). fundur
7. (1916). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
18.02.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Könnun meðal starfsfólks Garðabæjar - starfstengd viðhorf og líðan á vinnustað 2019.
Á fund bæjarráðs mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir tildrögum könnunar meðal starfsfólks Garðabæjar um viðhorf og líðan á vinnustað og fór yfir samantekt á helstu niðurstöðum.
02
Suðurhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410 leyfi til niðurrifs hluta húsnæðis að Suðurhrauni 3,eignarhluti 0101.
Fyrir liggur starfsleyfi heilbrigðiseftirlitsins og samþykki veðhafa.
03
Suðurhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410 leyfi til niðurrifs hluta húsnæðis að Suðurhrauni 3, eignarhluti 0102.
Fyrir liggur starfsleyfi heilbrigðiseftirlitsins og samþykki veðhafa.
04
Suðurhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410 leyfi til niðurrifs hluta húsnæðis að Suðurhrauni 3, eignarhluti 0201.
Fyrir liggur starfsleyfi heilbrigðiseftirlitsins og samþykki veðhafa.
05
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi framboð til stjórnar, dags. 12.02.20.
06
Umsagnarbeiðni um nýtt rekstrarleyfi vegna veitingareksturs á Garðaholti,
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
07
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi landamerki og eignarmörk, dags. 05.02.20.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til nánari skoðunar bæjarstjóra og til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
08
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi byggingarleyfi einbýlishúss að Brúnási 12, dags. 13.02.20.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem ákvörðun byggingarfulltrúans í Garðabæ frá 4. nóvember 2019 um að samþykkja byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 12 við Brúnás 12 felld úr gildi.
Fylgiskjöl
09
Bréf Gunnars Gunnarssonar varðandi umsókn um lóð í Garðahverfi, dags. 11.02.20.
Bæjarráð vísar umsókninni til nánari skoðunar bæjarstjóra.
10
Bréf Magnúsar Gunnarssonar varðandi umsókn um lóð í Garðahverfi, dags. 11.02.20.
Bæjarráð vísar umsókninni til nánari skoðunar bæjarstjóra.
11
Tölvupóstur Heilabrota varðandi kynningu á starfsemi félagsins., dags. 10.02.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara. Bæjarráð telur rétt að kanna nánar vilja annarra sveitarfélaga og hugsanlega kostnaðarþátttöku ríkisins vegna starfseminnar.
12
Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýju deiliskipulagi fyrir Leiðarenda, dags. 05.02.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
13
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga, dags. 12.02.20.
Lagt fram.
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum, 119. mál., dags. 12.02.20.
Lagt fram.
15
Tillaga Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
16
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um framkvæmdaáætlun.
Lögð fram og upplýst að stefnt er að því að leggja fram tímasetta framkvæmdaáætlun, aðgerðaráætlun vegna tillagna HLH og starfsáætlanir sviða á fundi bæjarráðs 25. febrúar nk.