41. (2336). fundur
41. (2336). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
24.11.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030)
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að gjaldskrá sorpgjalds sem byggir á því að íbúar greiði samkvæmt gjaldskrá raunkostnað fyrir þjónustu við losun heimilisúrgangs, sbr. lög 103/2021 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald.
Yfirlit yfir helstu breytingum á gjaldskrám.
Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa frá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Gert er ráð fyrir að á fundi bæjarráðs 1. desember nk. verði lagðar fram tillögur að breytingum ásamt frumvarpi að fjárhagsáætlun með breytingum. Síðari umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 3. desember nk.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
02
Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum (BF, MB, HBE, SS) gegn einu (ÞÞ) afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Erlendi Kára Kristjánssyni, kt. 190982-3009, leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum uppdráttum, leyfi fyrir breyttri notkun mannvirkis, innri breytingum og stækkun á millilofti, á Spildu A úr landi Grundar.
03
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2611002 varðandi útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar bílskúrs að Hólmatúni 57, dags. 18.11.26.
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2611002 þar sem kröfu kæranda á ákvörðun bæjarráðs Garðabæjar frá 10. janúar 2023 um að samþykkja útgáfu byggingarleyfis vegna stækkunar einbýlishúss á lóð nr. 57 við Hólmatún, er vísað frá úrskurðarnefndinni.
04
Erindi Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofunar á grundvelli 18.gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
Lagt fram erindi Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnunar á grundvelli 18.gr. laga um mannvirki, vegna Þorraholts 2.
Byggingarfulltrúi hefur brugðist við þeim athugasemdum sem fram koma í erindi HMS og hefur lokið skýrslu öryggisúttektar og gefið út vottorð vegna hluta mannvirkis í Þorraholti 2.
05
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum, 285. mál, dags. 18.11.26.
Lagt fram.
06
Fundargerð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 13.11.26.
Lögð fram.
07
Starfs- og fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 16.11.26.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
08
Styrkbeiðni Hollvinasamtaka Ísafoldar, dags. 19.11.26.
Bæjarráð samþykkir að Garðabær leggi til kr. 500.000 sem framlag í stofnsjóð nýstofnaðra Hollvinasamtaka Ísafoldar.