Beint í efni

Dýjagata 15. Breytingar - deiliskipulag

Málsnúmer 1806135

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (838). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dýjagötu 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og fram komu athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun, auglýst í B- deild Stjórnartíðinda og tilkynning um niðurstöðu málsins send þeim aðila sem gerðu athugasemdir.

Bæjarráð Garðabæjar

02

40. (1855). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dýjagötu 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og fram komu athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun, auglýst í B- deild Stjórnartíðinda og tilkynning um niðurstöðu málsins send þeim aðila sem gerðu athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að deiliskipulagsbreytingu á lóðinni Dýjagata 15. Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs hafa boðað þann aðila sem gerði athugasemd til viðtals en því var hafnað.
Lagöar fram þrívíddarmyndir arkitekts og höfundar fyrirliggjandi tillögu sem sýnir áhrif deiliskipulagsbreytingarinnar.
Skipulagsnefnd telur að áhrif breytingarinnar á aðliggjandi hús séu frekar til bóta frekar en baga.
Skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.44.gr.Skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

12. fundur

Á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 23. júlí 2018 var lögð fram tillaga lóðarhafa að eftirfarandi breytingum: -Breyting á inn/útskoti niðurgrafins byggingarhluta. -Breyting á byggingarreit vegna svífandi byggingarhluta. -Breyting á legu byggingarreits þannig að hann snúist lítillega. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um tillögurnar. Skipulagsstjóri metur breytingar vegna svífandi byggingarhluta og legu byggingarreits sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga og vísar þeim til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Dýjagata 13, 16 og 18. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis vegna inn- og útskota niðurgrafinna rýma sé vikið frá kröfu 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik er að ræða. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Að lokinni grenndarkynningu bárust tvær athugasemdir og ein undirskrift. Athugasemdum var vísað til skipulagsráðgjafa til umsagnar. Lögð eru fram grenndarkynningargögn, innsendar athugasemdir og umsögn skipulagsráðgjafa.

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir að skipulagsstjóri fundi með þeim sem sendu inn athugasemdir.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

6. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að eftirfarandi breytingum deiliskipulagsins:
-Breyting á inn/útskoti niðurgrafins byggingarhluta.
-Breyting á byggingarreit vegna svífandi byggingarhluta.
-Breyting á legu byggingarreits þannig að hann snúist lítillega.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um tillögurnar.
Skipulagsstjóri metur breytingar vegna svífandi byggingarhluta og legu byggingarreits sem óveulega breytingu deiliiskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar þeim til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Dýjagata 13, 16 og 18. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.
Skipulagsstjór gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis vegna inn- og útskota niðurgrafinna rýma sé vikið frá kröfu 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik er að ræða.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.