Beint í efni

Vetrarhátíð 2019

Málsnúmer 1901337

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Farið yfir hvernig tókst til á Safnanótt og Sundlauganótt 8. og 9. febrúar sl.

Vetrarhátíð var haldin dagana 7.-10. febrúar sl. með þátttöku allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í dagskrár Safnanætur og Sundlauganætur. Á Safnanótt var opið hús í Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands, burstabænum Króki og á Bessastöðum. Góð mæting var í söfnin þetta kvöld og farið var yfir hvernig tókst til. Á Sundlauganótt var að þessu sinni boðið upp á dagskrá í Ásgarðslaug þar sem einnig var góð mæting enda veðrið mjög gott. Bein útsending var frá dagskránni í Ásgarðslaug í fréttatíma sjónvarpsins.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Farið yfir drög að dagskrá fyrir Safnanótt 8. febrúar nk. og Sundlauganótt 9. febrúar nk. í Garðabæ.

Vetrarhátíð verður haldin dagana 7.-10. febrúar nk. með þátttöku safna og sundlauga frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 8. febrúar frá kl. 18-23 og í Garðabæ verður opið hús í Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands, Króki á Garðaholti og á Bessastöðum. Drög að dagskrá voru kynnt. Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 9. febrúar og að þessu sinni tekur Ásgarðslaug þátt með dagskrá frá 17-22.
Dagskráin verður kynnt með dreifibréf í hús til íbúa og með auglýsingu og umfjöllun í Garðapóstinn. Auk þess er dagskráin kynnt á vef Garðabæjar, fésbókarsíðu bæjarins og safnanna og á vef vetrarhátíðar, vetrarhatid.is.