Beint í efni

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2019

Málsnúmer 1901341

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Áframhald umræðu frá síðasta fundi.

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi um umsóknir í Hvatningarsjóð ungra listamanna.
Samþykkt var að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2019:
Einstaklingar:
Anna Katrín Hálfdanardóttir, styrk að upphæð 75 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Ásta Dóra Finnsdóttir, styrk að upphæð 75 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Benedikt Einarsson, styrk að upphæð 75 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Helga Sigríður E. Kolbeins, styrk að upphæð 75 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Hópar:
Askur Hrafn Hannesson, Birna Berg Bjarnadóttir, Hákon Hjartarson, Hrannar Máni Ólafsson, Birgir Bragi Gunnþórsson, styrk að upphæð 100 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Alexandra Rós Norðkvist, Salóme Sól Norðkvist, styrk að upphæð 100 000 kr vegna gjörningaverkefnis.
Jón Egill Hafsteinsson, Arngrímur Bragi, styrk að upphæð 100 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Skólahópar:
Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar, eldri hópur, styrk að upphæð 200 000 kr vegna tónleikahalds.
Rytmísk skólahljómsveit úr Tónlistarskóla Garðabæjar, styrk að upphæð 150 000 kr vegna tónleikahalds.
Nemendur í lokaáfanga fata- og textílhönnunarbrautar FG, styrk að upphæð 50 000 kr vegna tískusýningar.
Nemendur í lokaáfanga myndlistardeildar FG, styrk að upphæð 120 000 kr vegna myndlistarsýningar.

Samtals er úthlutun úr hvatningarsjóði ungra listamanna 1 120 000 kr.

Viðurkenningar fyrir úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna verða afhentar á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 22. maí nk.

Hannes Ingi Geirsson vék af fundi undir þessum lið.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Umsóknir lagðar fram og ræddar.

Auglýst var eftir umsóknum úr Hvatningarsjóði ungra listamanna í mars og apríl. Listi með umsóknum var lagður fram og ræddur. Umfjöllun verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Farið yfir núgildandi reglur og rætt um auglýsingu í vor.

Farið var yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna og hvernig úthlutun hefur farið fram á síðustu árum. Stefnt er að því að auglýsa eftir umsóknum í mars og tilkynnt verður um úthlutun úr hvatningarsjóðnum á menningaruppskeruhátíð í maí.