Dalsbyggð 21 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun íbúðarhússins að Dalsbyggð 21. Deiliskipulag fyrir Dalsbyggð telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt í bæjarstjórn áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi. Í þeim skilmálum sem stuðst var við þegar hverfið byggðist þá var ekki kveðið á um nýtingarhlutfall eða hámark byggðan flöt.
Húsið er í dag 282 m2 á tveimur hæðum. Mikill hæðarmunur er á lóð og er baklóð hærri en framlóð sem nemur einni hæð.
Tillagan gerir ráð fyrir 250 m2 stækkun, 107 m á hvorri hæð auk 35 m2 stækkunar garðhýsis. Eftir stækkun yrði húsið 532 m2 að flatarmáli.
Stærð lóðar er 951 m2.
Samkvæmt tillögu fer bygging út fyrir byggingarreit að ofanverðu um 3,5 m.
Nýtingarhlutfall fyrir stækkun er 0,3 en eftir stækkun 0,56. Byggður flötur á lóð fyrir stækkun er 15 % en eftir stækkun 28 %.
Í sambærilegum hverfum eins og Arnarnesi eða Flötum er hámarks nýtingarhlutfall 0,45 en hámarks byggðs flatar 30 % eða 35 %.
Skipulagsnefnd leggur til að lögð verði fram tillaga þar sem bygging er innan byggingarreits og heildar nýtingarhlutfall 0,45. Athuga þarf hvernig pallur á steyptum stoðveggjum reiknast til nýtingarhlutfalls.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu, á ódeiliskipulögðu svæði, sem er samtals 250 m2. Deiliskipulag fyrir telst ekki í gildi þar sem að það var samþykkt áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi.
Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.