Beint í efni

Samstarf Wapp og Garðabæjar um skráningu og birtingu gönguleiða

Málsnúmer 1903331

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Umhverfisnefnd leggur til að samstarfi við Wappið verði haldið áfram og nýr samstarfssamningur verði gerður.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Farið yfir áframhaldandi samstarf.

Greint var frá samstarfi Garðabæjar og Wapp um skráningu og birtingu gönguleiða í Garðabæ sem eru aðgengilegar í smáforritinu og aðgengilegar almenningi. Gönguleiðirnar í Garðabæ eru í boði Garðabæjar, þ.e. hægt er að hlaða þær niður endurgjaldslaust. Farið var yfir tölur um hversu oft leiðirnar hafa verið hlaðnar niður.
Stefnt er að því að gera áframhaldandi samning um gönguleiðirnar í Garðabæ og skoðað verður með hvaða hætti hægt er að kynna þessar gönguleiðir í Wappinu betur. Göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir og söguleiðir í Garðabæ í Wappinu hafa verið samstarfsverkefni menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.