11. fundur
11. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.04.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eva Ósk Ármannsdóttir - skjalastjóri
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1903084
01
Tillaga um að efla vistvænar samgöngur og lýðheilsu starfsmanna Garðabæjar.
Tillagan rædd og umhverfisnefnd styður við að auka hlutdeild vistvæna samgöngumáta. Einnig er óskað eftir að fá kynningu frá Reykjavíkurborg um verkefnið þar sem rafhjól eru lánuð íbúum.
Málsnúmer 1811057
02
Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2019
Umsókn í Framkvæmdsjóð ferðamannastaða um strandstíg á Álftanesi var synjað.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811108
03
Fundargerðir 2018 - 2022 - Reykjanesfólkvangur
Málsnúmer 1903383
04
Plastlaus september 2019
Umhverfisnefnd samþykkir að styrkja samtökin Plastlausan september um sambærilegan styrk og undanfarin ár.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902349
05
Grár dagur - Átaksverkefni fyrir bættum loftgæðum
Verkefni Strætó um Gráa daga kynnt fyrir nefndinni. Umhverfisnefnd fagnar framtaki Strætó.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902096
06
Samgönguvika 2019
Umræða um fyrirkomulag bíllausa dagsins og hvernig má gera honum hærra undir höfði en áður hefur verið og þróa daginn innan Garðabæjar.
Málsnúmer 1902095
07
Hreinsunarátak 2019
Hreinsunarátkið verður dagana 24. apríl - 7. maí og fer út auglýsinarbæklingur í lok vikunnar eða byrjun næstu viku. Vorhreinsun lóða verður dagana 13. - 24. maí og verður auglýst í sama bækling.
Málsnúmer 1902185
08
Spillivagninn
Spillivaginn mun vera í Garðabæ dagana 14. og 16. maí og verður það auglýst með í bæklingi um vorhreinsun 2019. Verkefnið með spillivaginn er tilraunarverkefni sem Reykjarvíkurborg fór fyrst í í fyrra og er að endurtaka núna. Garðabær vill auka flokkun og skil raftækja og spilliefna og tekur því þátt í tilraunarverkefni Reykjavíkurborgar með spillivagninn. Spillivagininum er ætlað að vekja athygli á nauðsyn þessa að koma spilliefnum í réttan farveg og auka við þjónustuna sem endurvinnslustöðvarnar veita.
Málsnúmer 1903331
09
Samstarf Wapp og Garðabæjar um skráningu og birtingu gönguleiða
Umhverfisnefnd leggur til að samstarfi við Wappið verði haldið áfram og nýr samstarfssamningur verði gerður.