Menningaruppskeruhátíð 2019
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Áframhald umræðu frá síðasta fundi.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um dagskrá menningaruppskeruhátíðar sem verður haldin í Sveinatungu á Garðatorgi miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 17:30-19.
Umræður voru um heiðursviðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista og ákvörðun tekin þar um.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Farið yfir umgjörð og rætt um heiðursviðurkenningu.
Stefnt er að því að halda hina árlegu menningaruppskeruhátíð Garðabæjar miðvikudaginn 22. maí nk.í Sveinatungu. Á menningaruppskeruhátíðinni verður tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar og úthlutað úr Hvatningarsjóði ungra listamanna. Umræður voru um heiðursviðurkenningar til framlags menningar og lista.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Dagsetning, staður, umgjörð, heiðursviðurkenning o.fl.
Menningaruppskeruhátíð Garðabæjar verður haldin miðvikudaginn 22. maí nk. í nýja fjölnota fundarsalnum Sveinatungu á Garðatorgi. Farið var yfir hvernig fyrri hátíðir hafa farið fram. Einnig var rætt um umgjörð hátíðarinnar í ár. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.