Víkurgata 27 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2230). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fyrir einbýlishús að Víkurgötu 27.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
15. fundur
Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir fyrir Víkurgötu 27 þar sem til að mynda lóðarhönnun hefur verið breytt og svalir stækkaðar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd hvað lóðarhönnun varðar. Hvað svalir varðar þá segir í greinargerð deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts að "einstakir byggingarhlutar, svo sem þakskegg, skyggni, gluggafrágangur, svalir og sólpallar mega skaga út fyrir byggingarreit, þar sem aðstæður á lóð leyfa, að mati byggingarfulltrúa, m.t.t. stærðar lóðar, fjarlægðar á milli húsa og þess háttar". Skipulagsstjóri metur það svo að í þessu tilviki er nálægð við nágrannalóð óveruleg og gerir því ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.