Þóroddarkot 2 - stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2212107
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram fyrirspurn um hugsanlega stækkun íbúðarhúss að Þóroddarkoti 2. Stærð lóðar er 866 m2.
Ekkert deiliskipulag er í gildi en hverfið hefur byggst samkvæmi skipulagi sem ekki hlaut staðfestingu.
Flatarmál núverandi húss húss 164,7 m2, sem þýðir að nýtingarhlutfall er 0,19.
Byggingarreitur 13mx20m eða 260 m2. Heimilt er að stækka hús innan byggingarreits. Ef byggingarreitur er fullbyggður nemur það nýtingarhlutfalli 0,3 sem er í samræmi við byggðamynstur í Kotum.
Þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi verður að vísa öllum byggingarleyfisumsóknum í grenndarkynningu skv. 44.gr.Skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010.