Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Útholt 14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
2. (2103). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Útholt 14, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
Samþykkt tillaga um deiliskipulagsbreytingu skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
1. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til einbýlishúsalóðarinnar Útholt 14 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
17. (932). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er varðar lóðina við Útholt 14, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í tilfærslu á bílastæðum innan lóðar. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum við Útholt 12, 25, 27 og 41, Stekkholts 1 og 2 og Vorbrautar 7 og 9.“ (Mál nr.2311304)
Bæjarráð Garðabæjar
04
45.(2098). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er varðar lóðina við Útholt 14, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í tilfærslu á bílastæðum innan lóðar. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum við Útholt 12, 25, 27 og 41, Stekkholts 1 og 2 og Vorbrautar 7 og 9.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
14. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um tilfærslu á bílastæðum innan einbýlishúsalóðarinnar Útholt 14.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Útholts 12 25, 27 og 41 sem og Stekkholts 1 og 2 og Vorbrautar 7 og 9.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.