Beint í efni

Skilti við Vífilsstaði/Reykjanesbraut - Stjarnan

Málsnúmer 2404497

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

17. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð auglýsingaskiltis í landi Vífilsstaða við Reykjanesbraut og norðan Vífilsstaðalækjar.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem athugasemdir gerðu.
Skipulagsnefnd vísar málinu til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

8. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir auglýsingaskilti neðan við Sunnuhvol vestan Vífilsstaða ásamt athugasemdum sem bárust í grenndarkynningu.
Lagðar fram þrívíddarmyndir sem sýna ásýndir skiltis frá húsum við Efstalund og endalóð við Sunnuflöt.

Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að funda með þeim sem athugasemdir gerðu og kynna fyrir þeim viðbótargögnum sem nú liggja fyrir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir nýtt auglýsingaskilti að lokinni grenndarkynningu. Skiltið yrði staðsett neðan við leikskólann Sunnuhvol og kæmi í stað skiltis í Vetrarmýri sem hefur ekki lengur stoð í deiliskipulagi.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

14. (947). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að staðsetningu auglýsingaskiltis við Reykjanesbraut vestan við Sunnuhvol sem er ætlað að koma í stað skiltisins sem stendur við Reykjanesbraut í Vetrarmýri en er víkjandi í deiliskipulagi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á staðnum. Skipulagsnefnd féllst á tillöguna og gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi byggingarleyfisumsókn sem er í samræmi við tillöguna til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

05

36. (2137). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að staðsetningu auglýsingaskiltis við Reykjanesbraut vestan við Sunnuhvol sem er ætlað að koma í stað skiltisins sem stendur við Reykjanesbraut í Vetrarmýri en er víkjandi í deiliskipulagi.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á staðnum.
Skipulagsnefnd féllst á tillöguna og gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi byggingarleyfisumsókn sem er í samræmi við tillöguna til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

12. fundur

Lögð fram tillaga að staðsetningu auglýsingaskiltis við Reykjanesbraut vestan við Sunnuhvol sem er ætlað að koma í stað skiltisins sem stendur við Reykjanesbraut í Vetrarmýri en er víkjandi í deiliskipulagi.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á staðnum.
Skipulagsnefnd fellst á tillöguna og gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi byggingarleyfisumsókn sem er í samræmi við tillöguna til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.