Beint í efni

10. fundur

20.11.2026
Velferðarráð Garðabæjar

10. fundur

Velferðarráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

20.11.2026

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Anna Ragnheiður Möller - formaður
  • Ýmir Örn Finnbogason - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Haukur Þorsteinsson - aðalmaður
  • Joanna Marcinkowska - áheyrnarfulltrúi
  • Vilborg Anna S. Garðarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
  • Guðrún Jónsdóttir - verkefnastjóri
  • Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 26102627

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Beiðni um endurskoðun synjunar um fjárhagsaðstoð til framfærslu vegna mætingarskyldu skv. 5. mgr. 16. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

Ákvörðun velferðarsviðs um synjun fjárhagsðstoðar til framfærslu skv. 5. mgr. 16. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 26102665

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Beiðni um endurskoðun skerðingar á fjárhagsaðstoð til framfærslu vegna mætingarskyldu skv. 5. mgr. 16. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

Ákvörðun velferðarsviðs um skerðingu skv. 5. mgr. 16. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2609451

03

Umsókn um félagslega íbúð

Beiðni um endurskoðun synjunar umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði vegna tekjuviðmiða skv. e-lið 1. mgr. 5. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði.

Ákvörðun velferðarsviðs um synjun umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2609514

04

Framlenging samnings frá 2026 um samræmda móttöku flóttafólks

Minnisblað um stöðu samræmdrar mótttöku flóttafólks lagt fram til kynningar. Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri samræmdrar móttöku, situr fundinn undir þessum lið, fer yfir minnisblaðið og svarar spurningum ráðsfólks.

Málsnúmer 2510290

05

Úttekt á málaflokki fatlaðs fólks

Minnisblað sviðsstjóra um áhersluaðgerðir samkvæmt greiningu á rekstri og skipulagi þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ lagt fram til umræðu og kynningar. Velferðarráð óskar eftir að tímasett áætlun með raunhæfum aðgerðum til hagræðinga í málaflokknum verði lögð fyrir ráðið í mars.

Málsnúmer 2306307

06

Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ

Minnisblað sviðsstjóra um vinnu og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ lagt fram til umræðu og kynningar. Velferðarráð felur velferðarsviði að vinna áfram að tillögum að útfærslu vinnu og virkniúrræða.