Beint í efni

Fjöl­breytt úti­vera

Í Garðabæ er hægt að njóta fjölbreyttrar afþreyingar utandyra. Hér er brot af því besta.

Púttvöllur

Þarftu að æfa púttin? Púttvöllurinn við Vífilsstaðaveg er 18 holur. Völlurinn er opinn öllum og kylfingur mætir með sína kylfu og bolta. Völlurinn er opinn yfir sumartímann.

Strandblak

Þrír strandblakvellir eru í Bæjargarði Garðabæjar sunnan við Ásgarð. Fullkomin afþreying á góðviðrisdögum.

Hver sem er getur nýtt sér vellina en þeir sem eiga pantaða tíma ganga fyrir á viðkomandi velli. Tímapantanir eru rafrænar á slóðinni: https://gardur.skedda.com/booking.

Frisbígolf

Frisbígolf er skemmtilega afþreying. Frisbígolfvöllurinn á Vífilsstöðum er með 10 brautir og býður upp á mikla fjölbreytni. Notendur vallarins koma sjálfir með frisbídiska til að spila með. Völlurinn er í garðinum sunnan við Vífilsstaði.

Meðfylgjandi er kort af vellinum.

Skemmtileg leiksvæði

Í Garðabæ er alltaf stutt í næsta leiksvæði. Við mælum með að kíkja inn á Kortavef Garðabæjar, haka þar við Hagnýtar upplýsingar og svo Leiksvæði og sjá hvar allir leikvellir bæjarins eru staðsettir.

Hjólabraut

Hjólabrautin fyrir ofan leikskólann Lundaból er um 440 metrar að lengd.

Hreystivellir

Hreystivellina er tilvalið að nýta á blíðviðrisdögum og æfa undir berum himni.

Opnir hreystivellir eru á fimm stöðum í Garðabæ; við Arnarneslækinn, Sunnuflöt, í Bæjargarðinum, í Vinagarði í Urriðaholti og á Álftanesi við sundlaugina. Tækin henta öllum 13 ára og eldri og eru þau einföld í notkun. Hvert tæki er merkt lit sem gefur til kynna hvaða þætti tækin þjálfa

Stjörnugerðið í Heiðmörk

Í stjörnugerðinu í Heiðmörk eru kjöraðstæður til að skoða stjörnuhimininn og norðurljós. Í gerðinu eru fimm fræðsluskilti, þar á meðal eitt um tunglið og annað um sólina og sólarganginn.

Gerðið sjálft veitir gott skjól og inni í því er bekkur; allt er að sjálfsögðu smíðað úr timbri úr Heiðmörk.

Afrakstur lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær

Stjörnugerðið í Heiðmörk er verkefni sem hlaut brautargengi í kosningum Betri Garðabæjar árið 2021. Betri Garðabær er lýðræðisverkefni þar sem íbúar leggja fram hugmyndir að framkvæmdum sem þeir vilja sjá í bænum og íbúar kjósa hugmyndir áfram.