Félagsleg ráðgjöf

Á fjölskyldusviði Garðabæjar er veitt ráðgjöf og stuðningur með víðtæku samstarfi við aðra aðila og stofnanir.

Markmið félagslegrar ráðgjafar er tvíþætt:
  • að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál
  • að veita stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda.

Haft er að leiðarljósi að styðja einstaklinga og fjölskyldur til sjálfshjálpar þannig að hver og einn geti notið sín sem best í samfélaginu.

Félagsleg ráðgjöf er meðal lögbundinnna verkefna sveitarfélaga. Allir sem orðnir eru 18 ára og eiga lögheimili í Garðabæ geta leitað ráðgjafar sér að kostnaðarlausu með því að snúa sér til fjölskyldusviðs bæjarins. 

Starfsfólk fjölskyldusviðs er bundið þagnarskyldu um málefni einstaklinga sem þangað leita. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera samkvæmt lagaboði, svo sem ef barni er hætta búin.

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Garðabæjar í síma: 525 8500.