Hvernig get ég haft áhrif?

Það eru nokkrar leiðir til að koma málum á dagskrá hjá bæjarstjórn / stjórnsýslu Garðabæjar. 

  1. Þú getur sent tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is . Málið fer þá í vinnslu hjá stjórnsýslunni og er komið til réttra aðila. 
  2. Þú getur sent inn ábendingu frá vef Garðabæjar. Málið fer í sama farveg og þau sem koma í tölvupósti. 
  3. Þú getur sett inn athugasemd við frétt á facebook síðu Garðabæjar eða smellt á "líkar við" ef þú vilt leggja áherslu á efni hennar. 
  4. Þú getur skrifað bréf til bæjarráðs Garðabæjar. Bæjarráð fundar á þriðjudagsmorgnum kl. 8.00. Erindi sem eiga að fara fyrir næsta fund bæjarráðs verða að berast í Ráðhúsið í síðasta lagi fyrir hádegi á föstudeginum áður. Þú getur sent bréfið í pósti eða tölvupósti eða sent það frá íbúavefnum Mínum Garðabæ.
  5. Þú getur pantað viðtalstíma við bæjarstjóra í síma 525 8500 .
  6. Þú getur mætt á auglýsta íbúafundi og látið álit þitt í ljós.
  7. Þú getur tekið þátt í útsendum könnunum um þjónustu Garðabæjar.

Ef engin þessara leiða hentar þér og/eða þú hefur aðra hugmynd um hvernig þú vilt hafa áhrif á málefni bæjarins hafðu þá endilega samband og láttu okkur vita.