4. ágú. 2023

Álftaneslaug lokuð 8.-19. ágúst

Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð vegna viðhaldsvinnu og þrifa frá 8. ágúst til og með 19. ágúst. 

Vegna árlegrar viðhaldsvinnu og þrifa verður Álftaneslaug lokuð frá og með þriðjudeginum 8. ágúst og stefnt að því að opna aftur laugardaginn 19. ágúst.  Líkamsrækt og íþróttasalir verða opnir en báðar sundlaugarnar, inni og úti, verða lokaðar. 

Ásgarðslaug er opin eins og venjulega þessa daga.